Hættuleg fita í blóði barna eftir helgar Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 12. mars 2015 09:00 Nammibar. Allir þurfa að hafa það notalegt og slappa af en ekki er nauðsynlegt að gera sér dagamun þrjá daga vikunnar. Þetta er mat stjórnanda rannsóknarinnar á áhrifum lífsstíls danskra barna um helgar. Vísir/Stefán
Talsvert hærra magn hættulegrar fitu og insúlíns mælist í blóði danskra barna á mánudögum en öðrum dögum vikunnar. Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna við Kaupmannahafnarskóla á áhrifum sælgætisáts og svefn- og hreyfingarleysis um helgar hjá 800 börnum í þriðja og fjórða bekk grunnskólans. Í frétt á vef danska ríkisútvarpsins er bent á að þessir þættir séu taldir auka hættu á hjarta- og æðasjúkdómum hjá fullorðnum. Haft er eftir Mads Fiil Larsen, stjórnanda nýju rannsóknarinnar, að ekki sé jafnljóst hvaða áhrif þetta hafi á heilsu barna. Hann segir þetta slæmt tákn en ekki sé hægt með vissu að segja hversu slæmt það er eða hvaða áhrif það hafi á heilsu barna eftir 30 til 40 ár. „Við höfum hins vegar ekki efni á því að bíða og sjá hvað verður,“ segir hann.Rannsóknin var gerð á 800 börnum í þriðja og fjórða bekk grunnskóla.En þótt vísindamaðurinn sé á þeirri skoðun að það sé neikvætt hversu mikil áhrif lífsstíll þeirra um helgar hefur þá er það ekki mat hans að börn eigi að sleppa því að borða helgarnammi eða kúra um helgar. „Ég held að allir þurfi að hafa það notalegt og slappa af en við erum að taka upp lífsstíl þar sem haldið er upp á helgina þrjá daga vikunnar með öllu sem því tilheyrir. Mér finnst að maður þurfi að íhuga þetta og gera sér dagamun bara í einn eða tvo daga í viku í staðinn,“ segir Larsen í viðtali við danska ríkisútvarpið. Rannsóknin tók til barna úr öllum stéttum og með alls konar holdafar. Rannsökuð voru yfir tvö þúsund blóðsýni úr börnunum. Að sögn Larsens er ekki hægt að segja að óhollur lífsstíll komi verr niður á einhverju einum hóp en öðrum. Vandamálið eigi við um alla hópana.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Sjá meira