Hávær kona handtekin í Vesturbænum Jakob Bjarnar skrifar 5. maí 2015 07:10 Engu tauti var komið við hina háværu konu og lauk viðskiptum hennar og lögreglu með því að hún var vistuð í fangageymslu við Hverfisgötu.
Í nótt, skömmu fyrir klukkan þrjú, barst lögreglu tilkynning um háværa konu sem var að reyna að komast inn í bílskúr við hús í Vesturbænum. Lögreglumenn mættu á svæðið og ræddu við háværu konuna sem þá var búin að vekja fólk í nærliggjandi húsum með látum. Sljákkaði í konunni sem lofaði öllu fögru og sagðist ætla að hafa sig hæga en ekki var mikið um efndir því lögreglumenn þurftu skömmu síðar að sinna öðru útkalli, aftur vegna háreista og láta í þessari sömu konu. Hún neitaði þá að gefa upp nafn og hvar hún byggi. Að lokum var hún færð á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hún var vistuð í fangageymslu. Þá greinir frá því, í skeyti frá lögreglu, að lögreglumenn hafi verið á eftirlitsferð í nótt um klukkan hálffjögur, og komu þá að manni þar sem hann var að taka dekk undan bifreið skammt frá bifreiðaumboði á Höfðanum. Var hann búinn að taka þrjú dekk undan bifreiðinni þegar lögreglumenn trufluðu hann við verkið. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira