Innlent

Hugmyndir um að leggja niður vasapeningakerfið liggi að mestu fyrir

Bjarki Ármannsson skrifar
„Ég bind vonir við að hægt verði að taka upp breytt kerfi áður en langt um líður,“ segir Eygló.
„Ég bind vonir við að hægt verði að taka upp breytt kerfi áður en langt um líður,“ segir Eygló. Vísir/GVA/Vilhelm
Hugmyndir um að leggja niður svokallað vasapeningakerfi fyrir vistmenn dvalar- og hjúkrunarheimila liggja að mestu fyrir. Vonir eru bundnar við að hægt verði að taka nýtt kerfi áður en langt um líður. Þetta sagði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í ræðu sinni á fundi Landssambands eldri borgara í dag.

Vasapeningakerfið virkar þannig að þegar einstaklingur flytur inn á dvalar- eða hjúkrunarheimili þá greiðist lífeyrir viðkomandi frá Tryggingastofnun inn á heimilið en hámarks þátttaka í dvalarkostnaði er 354.902 krónur. Ef tekjur eru undir 74.696 á mánuði eftir skatt, þá tekur íbúi ekki þátt í dvalarkostnaði sínum. Viðkomandi fær svo vasapening úthlutað frá Tryggingarstofnun sem er að hámarki 53.354 krónur á mánuði. Vasapeningar eru tekjutengdir og falla alveg niður ef tekjur ná 82.083 krónum á mánuði.

Talsverðrar óánægju hefur gætt með þetta kerfi og í nýlegri frétt Fréttablaðsins sagði Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, það svipta aldraða sjálfræði. Kerfið væri úrelt og það réttlætismál að fá því breytt.

Í máli Eyglóar í dag kom fram að hugmyndir um breytt greiðslufyrirkomulag miði að því að auka sjálfræði aldraðra. Stefnt sé að tilraunaverkefni um innleiðingu þessara breytinga.

„Ég bind vonir við að hægt verði að taka upp breytt kerfi áður en langt um líður en til umræðu er að prófa það fyrst sem tilraunaverkefni í ljósi þess að þetta er umtalsverð breyting sem þarf að vanda vel til“ sagði Eygló.

Nýtt kerfi myndi byggja á því að einstaklingar greiði milliliðalaust fyrir alla þjónustu sem þeir fá á hjúkrunarheimilum, að undanskilinni heilbrigðisþjónustu og annarri umönnun. Greiðslufyrirkomulagið yrði þannig tvíþætt, þar sem annars vegar væru daggjöld ríkisins vegna heilbrigðisþjónustu og umönnun en einstaklingarnir myndi greiða fyrir almenna framfærslu að öðru leyti.

Að auki er svo gert ráð fyrir húsaleigukostnaði sem tæki mið af stærð og gæðum húsnæðisins en einnig af tekju- og eignastöðu viðkomandi. Samkvæmt þessum hugmyndum er gert ráð fyrir að fólk geti átt rétt á húsaleigubótum, rétt eins og gildir á almennum leigumarkaði.


Tengdar fréttir

Vasapeningakerfi sviptir aldraða sjálfræði

Formaður Félags eldri borgara telur réttlætismál að lagt verði af "vasapeningakerfi“ á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Heimilin fá lífeyrisgreiðslur viðkomandi heimilismanna sem er síðan úthlutað vasapeningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×