Óheimilt verði að skipa mann í embætti hafi hann gegnt því síðasta árið Jóhann Óli Eiðsson skrifar 21. október 2015 18:12 Sigríður Á. Andersen er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. vísir/pjetur
Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Verði frumvarpið að lögum verður óheimilt að skipa eða ráða mann til embættis ef hann hefur verið settur til að gegna því á síðustu tólf mánuðum. Frumvarp sama efnis var flutt í nóvember 2012 en var aldrei tekið til umræðu. Þá var fyrsti flutningsmaður, líkt og nú, Sigríður Á. Andersen. Árið 1996 varð heimilt að setja menn í embætti til reynslu í embætti áður en hann er skipaður í það en lagt er til þess að sú heimild verði felld úr lögum. Með þeirri breytingu sem nú er lögð til er ekki hróflað við þeirri almennu heimild til að setja menn til að gegna embætti heldur eingöngu verið að skjóta loku fyrir að hinn setti maður verði skipaður til sama embættis á sama tíma, eða skömmu eftir, að hann gegnir setningunni. „Við setningu manns til embættis er að jafnaði einfaldari undir¬búningur en við skipun hans til þess, auk þess sem stór hópur vænlegra einstaklinga hefur ekki tök á að gegna setningu, með þeirri röskun sem slíkt er á högum þeirra. Með setningunni öðlast hinn setti hins vegar forskot á aðra væntanlega umsækjendur þegar til þess kemur að embættið verður auglýst laust til skipunar. Þá er fyrir hendi sú hætta að reynt sé að styrkja stöðu hugsanlegs framtíðarumsækjanda með því að afla honum reynslu í embættið sem aðrir hafa ekki sömu möguleika á að afla sér,” segir í greinargerð með frumvarpinu. Auk Sigríðar standa Birgir Ármannsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Jón Gunnarsson og Elín Hirst að því.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira