Viðbúnaður vegna komu hershöfðingja bandaríska flughersins í Evrópu og Nato Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 24. ágúst 2015 11:48 Mikill viðbúnaður var vegna komu Gorenc til landsins. Mynd/Ásgrímur Sigurðsson
Frank Gorenc, hershöfðingi bandaríska flughersins í Evrópu og NATO, verður á Íslandi í dag og á morgun til þess að funda með íslenskum ráðamönnum og heimsækja staði er tengjast varnarmálum landsins. Gorenc lenti á Reykjavíkurflugvelli í morgun og var mikill viðbúnaður vegna komu hans til landsins, vegfarendur við Hringbraut hafa ef til vill tekið eftir því að um níu í morgun var götum lokað og fjölmennt fylgdarlið fylgdi Gorenc á sinn fyrsta áfangastað í Íslandsheimsókninni. Í tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna segir að Gorenc komi til með að þakka íslenskum stjórnvöldum sérstaklega fyrir rekstur loftvarnakerfa á Íslandi sem gegna lykilhlutverki í sameiginlegum vörnum Bandaríkjanna og NATO á meðan heimsókninni stendur. Segja heimsóknina sýna fram á mikilvægi samvinnu ríkjanna „Heimsóknin sýnir fram á mikilvægi samvinnu Bandaríkjanna og Íslensku Landhelgisgæslunnar og sýnir einnig hversu stóru hlutverk Landhelgisgæslan hefur að gegna við að tryggja öryggi Íslands,“ segir í tilkynningunni. Þar er einnig vitnað í hershöfðingjann sjálfan en hann er ánægður með að fá að koma til Íslands. „Það er mér sérstök ánægja að fá tækifæri til að heimsækja Ísland og dást að náttúrunni. Ég er stoltur að fá tækifæri til að vinna með svona öflugum bandamanni. Máttur Íslands og þýðingarmikið aðgengi landsins veitir NATO öryggi sem er til fyrirmyndar fyrir bandamann sem leggur sitt að mörkum hvað varðar framtíðarsýn Evrópu í heild sinni, frjálsrar álfu þar sem friður ríkir,“ sagði Gorenc.Umdeild aðild Íslands Ísland gerðist stofnaðili að NATO eða Norður-Atlantshafsbandalaginu í apríl 1949. Þátttaka landsins í bandalaginu hefur löngum verið umdeild en bandaríska sendiráðið segir í tilkynningunni Bandaríkin búa við öflugt varnarsamband með Íslandi, bandamanni sínum í NATO. „Frá árinu 2008 hefur bandaríski loftherinn sinnt lofteftirliti og löggæsluverkefni á Íslandi en slíkt er hluti af skuldbindingu NATO til öryggis- og varnarmála Íslands.“ Ísland hefur undanfarin ár ásamt bandamönnum sínum innan NATO tekið þátt í viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi og eins og kunnugt er hefur það endað með því að Rússland setti Ísland á innflutningsbannlista. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu tengist heimsóknin ekki fyrrnefndu „makrílsölubanni“; en Íslendingar flytja mikið af makríl og loðnu til Rússlands.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira