Dæmdur fyrir að slá mann með bjórglasi fyrir utan Paddy's Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. mars 2015 15:36 Paddy's er skemmtistaður í Reykjanesbæ og átti árásin sér stað fyrir utan hann. Vísir/Stefán
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fyrir utan skemmtistaðinn Paddy‘s í Reykjanesbæ í ágúst 2013. Maðurinn var ákærður fyrir að slá annan mann í andlitið með bjórglasi þannig að það brotnaði, tekið hann svo hálstaki og hrint honum niður tröppur. Maðurinn féll við það í jörðina og hlaut áverka, meðal annars skurði á vinstra gagnauga og framan við vinstra eyra. Ákærði í málinu játaði fyrir dómi að hafa slegið manninn en sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann hafi verið með bjórglas með hendinni. Hann hafi því ekki slegið manninn viljandi með bjórglasinu í andlitið. Þar að auki kvaðst hann fyrir dómi hafa verið í sjálfsvörn þar sem maðurinn sem hann sló hafi skömmu áður gripið um klof hans og reynt að kyssa hann. Þá neitaði ákærði að hafa hrint manninum niður tröppurnar og tekið hann hálstaki. Vitni báru hins vegar um það að hafa séð hrindinguna en enginn bar um hálstakið. Dómurinn taldi því sannað að ákærði hafi hrint manninum niður tröppurnar þrátt fyrir neitun hans. Þá tók dómurinn ekki til greina þá skýringu ákærðu að hann hafi ekki áttað sig á því að hann væri með bjórglas í hendinni þegar hann sló til mannsins. Að auki geti ekkert sem á undan var gengið réttlætt árásina. Maðurinn hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Dómurinn mat það því hæfilegt að dæma hann í skilorðsbundið sex mánaða fangelsi til þriggja ára. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira