Milljónir í æskulýðsstarf kirkjunnar frá Seltjarnarnesi og Garðabæ Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. maí 2015 07:00 Formaður sóknarnefndar Garðasóknar segir bæjaryfirvöld fá ítarlegar upplýsingar um hvernig styrkfé úr bæjarsjóði er varið. Fréttablaðið/Rósa
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á þriðjudag að styrka æskulýðsstarf þeirra tveggja sóknarkirkna sem heyra undir þjóðkirkjuna í sveitarfélaginu um samtals 16,5 milljónir króna á þremur árum. Gunnar Einarsson bæjarstjóri segist ekki óttast athugasemdir við að verið sé að styrkja starfsemi trúfélags með fé úr bæjarsjóði. „Nei, við erum að styrkja margvíslegt starf hjá öllum félögum. Við erum til dæmis að styrkja Klifið sem skipuleggur vísinda- og tómstundastarf fyrir ungt fólk. Þannig að við styrkjum margt sem eflir barna- og unglingastarf almennt og erum ekki að velta fyrir okkur hvort það sé kirkjan eða ekki,“ svarar bæjarstjórinn.Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.Að sögn Gunnars eru mörg ár síðan Garðabær gerði fyrst samning við Garðasókn um æskulýðsstarfið. Nú hafi Bessastaðasókn bæst við eftir að Garðabær og Álftanes sameinuðust. Um leið og styrkirnir til Garðasóknar og Bessastaðasóknar voru samþykktir ákvað bæjaráð sex milljóna króna árlegt framlag til Hestamannafélagsins Spretts, sjö hundruð þúsund króna árlegt framlag til Hestamannafélagsins Sóta og sex hundruð þúsund króna árlegt framlagt til Taflfélags Garðabæjar. „Við höfum horft á þetta þannig að þessi félög, alveg sama hvað þau heita og hvað þau gera, séu ákveðið lím í samfélaginu og höfum tekið meðvitaða ákvörðun um það að styrkja félög almennt vel og hvetja þau áfram,“ segir Gunnar. „Því fleiri félög og meiri starfsemi hjá þessum félögum því öflugra er lýðræðið og samkenndin í sveitarfélaginu og félagsauðurinn eykst. Í fræðunum er talað um að því öflugri sem félagsauður hvers samfélags er því meira traust ríki milli íbúanna og því meira traust á yfirvöldum líka.“Magnús E. Kristjánsson, formaður sóknarnefndar Garðasóknar.Fréttablaðið/AntonStarfsmaður á biskupsstofu kveðst aðeins vita um eitt annað sveitarfélag á landinu sem styrkir æskulýðsstarf í þjóðkirkjunni með fjárframlögum. Það sé Seltjarnarnes. Framlag bæjarins til barna- og unglingastarfs Seltjarnarneskirkju er fjórar milljónir króna á þessu ári. Í samningum um styrkina við æskulýðsfélög í Garðasókn og Bessastaðasókn er kveðið á um árlegar greiðslur til þriggja ára og skyldur sóknanna. Til dæmis eiga þær að efla barna- og unglingastarf í formi sunnudagaskóla, efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í bænum og annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf, lífsleikni og siðfræði. „Bæjarfélagið hefur sem betur fer séð sér fært að styrkja æskulýðsstarf hjá honum ýmsu félögum í bænum, meðal annars hér og fyrir það erum við þakklát,“ segir Magnús E. Kristjánsson, formaður sóknarnefndar Garðasóknar.
Mest lesið „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Samfylkingin velur sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Erlent Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin velur sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Sjá meira