Dómur þyngdur yfir manni sem veittist ítrekað að óléttri konu sinni Sunna Karen sigurþórsdóttir skrifar 30. apríl 2015 18:49 Maðurinn var fundinn sekur fyrir fimm líkamsárásir á hendur fyrrum sambýliskonu. vísir/gva
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir karlmanni sem fundinn var sekur í Héraðsdómi Norðurlands Eystra fyrir líkamsárásir og þjófnað á hendur fyrrum sambýliskonu sinni í október í fyrra. Var hann dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða konunni 800 þúsund krónur. Maðurinn var ákærður fyrir fimm líkamsárásir gegn konunni, stórfelldar ærumeiðingar í hennar garð og þjófnað með því að hafa í tvígang millifært í heimildarleysi peninga á sinn reikning í gegnum heimabanka hennar.Setti hné í kvið konunnar sem gengin var 21 viku Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um líkamsárásirnar gegn konunni, sem hann hafði verið sýknaður af í héraðsdómi. Var hann meðal annars dæmdur fyrir að hafa í nóvember 2011 slegið í konuna, tekið hana hálstaki og sett hné í kvið hennar en hún var þá gengin rúma 21 viku með barn sitt og ákærða. Mánuði síðar var honum gefið að sök að hafa slegið hana í andlit, ýtt henni í gólfið og tekið hana hálstaki. Þá veittist hann að henni fyrir framan heimili þeirra með því að slá hana með flötum lófa í andlitið inni í kyrrstæðri bifreið, elt hana úr bílnum er hún féll í jörðina, rifið í hár hennar og slegið hana. Þá var honum gefið að sök að hafa ítrekað sparkað í höfuð hennar og búk.Sýknaður af ærumeiðingum Þá var manninum gefnar stórfelldar ærumeiðingar í garð konunnar í hennar garð en var af því sýknaður. Taldi dómurinn ekki nægilega afmarkað hvernig maðurinn hefði almennt móðgað konuna og smánað. Loks var hann sakfelldur fyrir þjófnað vegna einnar millifærslu, alls 60 þúsund krónur sem hann færði yfir á sinn reikning í febrúar 2013.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira