Vændi og fíkniefnaneysla í fangelsunum sem og annars staðar í samfélaginu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. nóvember 2015 13:09 Páll Winkel fangelsismálastjóri. vísir/andri marinó
Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir að líkt og annars staðar í samfélaginu þekkist fíkniefnaneysla og vændi innan veggja fangelsanna. Dæmi sem tekin séu í umsögn stofnunarinnar um frumvarp um fullnustu refsinga, um ungar stúlkur sem komið hafa dauðhræddar í heimsókn á Litla-Hraun, séu einfaldlega sett fram til að gera löggjafarvaldinu grein fyrir að heimsóknir í fangelsið hafi verið misnotaðar. Setja þurfi skýrari reglur til að koma í veg fyrir það. Í umsögninni er sagt frá stúlkum sem komið hafa í heimsókn á Litla-Hraun eftir að fangar settu þær á heimsóknarlistann sinn. Þegar þær hafi svo mætt í fangelsið hafi komið í ljós að þær þekktu ekki fangana í sjón sem þær voru komnar til að heimsækja. Aðspurður hvort að fangar geti sett hvern sem er á heimsóknarlistann sinn segir Páll: „Fangar eiga rétt á heimsóknum fjölskyldu og vina og ég vil undirstrika það í langflestum tilvika er þetta bara gott mál og mikilvægur þáttur í því að draga úr einangrun fanga. Við hins vegar höfum takmarkaðar heimildir til þess að bakgrunnsskoða eða fara í gegnum ferils hvers og eins heimsóknaraðila eða hvað þá skoða hvort að um raunverulegt samband er að ræða. En eins og staðan er í dag þá hafa þessi tilvik komið upp. Já, fangi getur óskað eftir heimsóknum vina og fjölskyldumeðlima og fær það í flestum tilvikum.“ Það sé því undantekning að verið sé að misnota heimsóknirnar í fangelsin. Hins vegar viti fangelsismálayfirvöld af því að fíkniefni komi með gestum. „Það eru dæmi um það að sérstaklega stúlkur hafi komið þarna inn og verið með mjög lítil tengsl við fanga.“Eru þær þá gagngert að koma til að reyna að smygla fíkniefnum inn eða til að selja sig eða eitthvað slíkt? „Eina sem ég get sagt um að þetta sem þú ert að nefna á sér stað alls staðar í samfélaginu og líka í fangelsunum.“
Tengdar fréttir Ungar stúlkur „skelfingu lostnar“ þegar þær koma í heimsókn á Litla-Hraun Í umsögn Fangelsismálastofnunar um frumvarp innanríkisráðherra um fullnustu refsinga er fjallað um mikilvægi þess að heimsóknir til fanga séu ekki misnotaðar. 26. nóvember 2015 15:46 Mest lesið Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Erlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Erlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Fleiri fréttir Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Sérsveitaraðgerð á Selfossi Fleiri stelpur týndar en áður Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ „Evrópusambandið hefur haft sömu viðskiptastefnu og Trump“ Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Meirihluti vill viðræður við ESB og mikið mannfall í Íran Grunaðir um íkveikju í eigin húsnæði Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Inga um nýtt embætti og staða Íslands í alþjóðamálum Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Stofna ný samtök gegn ESB aðild Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Hæstaréttar Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Sjá meira
Ungar stúlkur „skelfingu lostnar“ þegar þær koma í heimsókn á Litla-Hraun Í umsögn Fangelsismálastofnunar um frumvarp innanríkisráðherra um fullnustu refsinga er fjallað um mikilvægi þess að heimsóknir til fanga séu ekki misnotaðar. 26. nóvember 2015 15:46