7,5 milljónir barna hafa lagt á flótta Stefán Árni Pálsson skrifar 5. mars 2015 10:23 Fleiri en 200.000 börn frá Sýrlandi hafa flúið til Jórdaníu. mynd/aðsend
Fleiri en 7,5 milljónir barna hafa lagt á flótta vegna stríðsins í Sýrlandi, en 15. mars næstkomandi verða fjögur ár liðin frá upphafi átakanna í landinu. Við þessi sorglegu tímamót efna UNICEF og Fatimusjóðurinn nú til neyðarsöfnunar í þágu menntunar og framtíðar sýrlenskra flóttabarna. Í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi kemur fram að hægt sé að leggja söfnuninni lið með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.490 krónur) og gefa þannig flóttabarni frá Sýrlandi pakka af skólagögnum. Áhersla söfnunarinnar verður á menntun sýrlenskra barna sem flúið hafa yfir til Jórdaníu en þar í landi eru fleiri en 220.000 flóttabörn á skólaaldri. Mörg þeirra sækja skóla í flóttamannabúðum þar sem þau búa eða í almenningsskólum í Jórdaníu. Skólarnir eru hins vegar að verða yfirfullir og fleiri en 60.000 börn njóta hvorki formlegrar né óformlegrar menntunar.Mikilvægur fasti í ringulreið stríðsátaka Börn eiga aldrei sök í stríði en engu að síður eru það þau sem bera mestan skaða af átökunum. Með stuðningi heimsforeldra UNICEF og fjölda fólks sem stutt hefur neyðaraðgerðir samtakanna í Sýrlandi og nágrannaríkjunum, UNICEF veitt sýrlenskum börnum neyðarhjálp á borð við heilsugæslu, hlýjan vetrarfatnað, hreinlætisaðstöðu, sálrænan stuðning og menntun.Þessi kynslóð sýrlenskra barna verður vonandi sú sama og fær það gífurlega stóra hlutverk að byggja sýrlenskt samfélag upp á ný.„Menntun er ef til vill ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar neyðarhjálp er nefnd. Skólaganga skiptir hins vegar ekki aðeins máli fyrir framtíð barna heldur skapar skólinn líka mikilvægan, fastan punkt í tilveru sem hefur verið umturnað í þeirri ringulreið sem stríðsástand og flótti skapa. Menntun verður enn mikilvægari þegar neyðarástand varir í langan tíma,“ segir Sólveig Jónsdóttir, fjölmiðlafulltrúi UNICEF á Íslandi.Ómetanlegur stuðningur „Fatimusjóðurinn hefur áður tekið höndum saman með UNICEF í þágu barna, bæði í Jemen og Sýrlandi. Fyrir það erum við afar þakklát en stuðningur þeirra hefur breytt lífi ótal barna til hins betra,“ segir Sólveig. Fjölmargir leggja sitt af mörkum til söfnunarinnar með margvíslegum hætti. Föstudaginn 6. mars og laugardaginn 7. mars stendur Skákfélagið Hrókurinn fyrir skákmaraþoni í Hörpu. Hrafn Jökulsson teflir báða dagana frá kl. 09:00-24:00 við hátt í 200 áskorendur; leikara, stjórnmálamenn, tónlistarfólk, byrjendur í skákíþróttinni og lengra komna. Fulltrúar UNICEF og Fatimusjóðsins verða á svæðinu og taka við framlögum til söfnunarinnar. Allir eru hjartanlega velkomnir. Háskólastúdentar láta ekki sitt eftir liggja og efna til viðburðar á Háskólatorgi frá kl. 11:00-14:00 í dag, fimmtudag. Póstkort verða seld til styrktar neyðarsöfnuninni og Bóksala stúdenta selur bókina Arabíukonur, eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur stofnanda Fatimusjóðsins. Ágóði sölunnar rennur beint til neyðarsöfnunarinnar. „Þessi kynslóð barna frá Sýrlandi verður vonandi sú kynslóð sem fær það ólýsanlega stóra hlutverk að byggja sýrlenskt samfélag upp á nýjan leik. Það skiptir öllu máli að við leggjum okkar af mörkum til að búa þau undir betri framtíð. Menntun er öflugasta leiðin til þess,“ segir Sólveig.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Sjá meira