Mun dreyma hróka og riddara næstu nætur Jakob Bjarnar skrifar 5. mars 2015 11:21 Hrafn gerir ráð fyrir því að mæta 200 skákmönnum um næstu helgi.
Skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir Skákmaraþoni í Hörpu föstudaginn 6. mars og laugardaginn 7. mars til að styðja við söfnun Fatimusjóðs og UNICEF á Íslandi í þágu skólahalds fyrir sýrlensk flóttabörn. Prímusmótor í hinum sérstæða skákklúbbi Hróknum, er Hrafn Jökulsson. Hrókurinn var stofnaður af Hrafni á Grandrokk, utan um áhugamál nokkurra kaffihúsaskákmanna; en fljótlega bættust hörkuskákmenn í hópinn. Hrókurinn gæddi skáklíf landsmanna nýju lífi, því klúbburinn skráði sig til leiks á Íslandsmótið; gerði sér lítið fyrir og fór úr 4. deild, rakleiðis uppí þá 1. og urðu Íslandsmeistarar; unnu öruggan sigur á Íslandsmóti skákfélaga árið 2002 með 47½ vinning af 56 mögulegum. Þetta er undraverð saga, öflugustu skákmenn landsins, heima og heiman, gengu til liðs við Hrókinn, en þegar félagið var á toppi tilverunnar, ef svo má að orði komast, venti Hrókurinn kvæði sínu í kross og tók að einbeita sér alfarið af skáktrúboði á Grænlandi og allskyns góðgerðarstarfsemi. Og, nú er teflt fyrir sýrlensk flóttabörn. Hrafn vonast til þess að tefla um 200 skákmenn. „Áskorendur koma úr öllum áttum, jafnt meistarar sem byrjendur. Það verður vel tekið á móti öllum,“ segir Hrafn í samtali við Vísi.Þú hefur áður teflt skákmaraþon, hvernig gekk það? „Ég hef þrisvar teflt maraþon áður, síðast 2006, mest 250 skákir. Kannski tekst mér að slá það persónulega met, en aðalmarkmið mitt er að vekja athygli á söfnun Fatimusjóðs og Unicef í þágu sýrlensku flóttabarnanna. Ef það tekst er tilganginum náð, hvað svo sem gerist á skákborðinu.“En, eru menn ekki algerlega búnir eftir slíka rispu, þetta hlýtur að taka á? „Mér finnst náttúrlega stórkostlega skemmtilegt að tefla, svo ég hlakka mikið til. En jú, ég býst við að verða þokkalega úrvinda þegar upp er staðið og býst við því að mig dreymi riddara, hróka og biskupa fram eftir næstu viku.“ Hrafn segir að ýmsir sterkir skákmenn hafa meldað sig; „og ég mun skora sérstaklega á alla stórmeistarana okkar að mæta. En þarna verður fólk úr öllum áttum, eins og hæfir, því kjörorð skákhreyfingarinnar eru ,,Við erum ein fjölskylda“. Ég hvet alla til að kíkja við í Hörpunni, taka eina bröndótta eða bara fylgjast með, og leggja sýrlensku börnunum lið.“ Hrafn leggur á það áherslu að öllum sé velkomið að mæta í Hörpuna og spreyta sig. Hrafn teflir við einn áskoranda í senn og mun samtals sitja að tafli í 30 klukkustundir. Skákkunnátta er algert aukaatriði og byrjendur fá tilsögn í taflinu hjá Hrafni og liðsmönnum Hróksins í Hörpu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira