Pylsurnar aftur úr íslensku hráefni 23. janúar 2015 09:00 Íslenskir kjötframleiðendur hafa aukið vöruframboð af alls kyns pylsum til að mæta eftirspurn Íslendinga eftir slíku fæði. Upp hefur komið skortur á innlendu hráefni og þá þarf að nota erlent kjöt í pylsurnar.
Landbúnaður„Íslensku pylsurnar frá SS eru nú alíslenskar,“ segir Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri á Hvolsvelli, og segir nú nóg til af innlendu hráefni til framleiðslunnar. Ekkert þurfi af innfluttu, erlendu kjöti í framleiðsluna. „Við reiknum með að þurfa ekki að grípa til innflutnings aftur næsta sumar þrátt fyrir aukna eftirspurn m.a. vegna fjölgunar ferðamanna.“ Mikill skortur var á nautakjöti síðasta sumar, íslenskir bændur önnuðu ekki hinni miklu eftirspurn eftir vörunni og þá neyddist Sláturfélag Suðurlands til nota danskt nautakjöt að hluta á móti íslensku hráefni í SS-pylsurnar. „Þetta var tímabundið. Það litla sem við notuðum af erlendu nautakjöti í nokkrar vikur í sumar var fyllilega sambærilegt að gæðum og nautakjötið okkar,“ segir Guðmundur frá og bætir því við að nú séu allar afurðir fyrirtækisins með alíslensku hráefni og þannig verði það áfram. Ekki ætti að þurfa að grípa til innflutnings á háannatíma, sem er nokkrar vikur á sumrin. Guðmundur segir fyrirtækið bregðast við aukinni eftirspurn með frekari hætti. Til að mynda með vöruþróun. „Við erum með aukið framboð af grillpylsu og hrápylsum (þurrpylsum) af ýmsu tagi m.a. rauðvíns-salamí. Baldur Helgi Benjamínsson, formaður Landssamtaka kúabænda, bendir hins vegar á að það tekur 3-4 ár að bregðast við óvæntri aukinni eftirspurn og að varað hafi verið við skorti í mörg ár.„Nautakjötsframleiðsla er með þeim hætti að þetta er langtímaverkefni, framleiðslutíminn er þrjú ár. Við höfum verið að efla holdanautabúskap, þannig að bændur geti stundað öflugri ræktun og fengið betri gripi,“ segir hann frá og tiltekur að ýmsar hindranir séu í veginum. Lagabreytingu þurfi til að efla framleiðsluna en Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra hefur boðað að hann hyggist flytja frumvarp til breytinga á lögum um innflutning dýra þannig að til verði svipaður farvegur fyrir kynbótastarf holdanautabænda eins og í öðrum búgreinum. „Ég sé þetta sem ákveðinn grundvallarþátt í því að það sé hægt að auka þessa framleiðslu. Þessi markaður er að stækka býsna hratt.“ Hvort það þarf að kaupa erlent kjöt í pylsur eða ekki er óvíst. Baldur Helgi segir fjölgun ferðamanna hafa mest áhrif á sölu nautakjöts. „Nautakjötið er kjöt sem erlendir gestir okkar þekkja.“kristjanabjorg@frettabladid.is
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Fleiri fréttir Kvótinn gerði allt vitlaust í Brussel Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Sjá meira