Í rannsóknum og samkeppni samtímis Heiða Kristín Helgadóttir skrifar 23. janúar 2015 07:00 Sveinn Margeirsson, forstjóri MAtís, segir trúnaðarákvæði eiga að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Mynd/Matís Matís
Íslensk snyrtivörufyrirtæki veigra sér sum hver við að nýta sér þjónustu sem þeim stendur til boða hjá Matís vegna tengsla eins starfsmanns við keppinauta. Starfsmaðurinn, Hörður G. Kristinsson, er rannsóknarstjóri hjá Matís en hann á sjálfur snyrtivörufyrirtæki sem framleiðir UNA skincare-húðvörurnar ásamt Matís. Íslensk snyrtivörufyrirtæki kaupa mörg hver rannsóknir af Matís og nota niðurstöður í vöruþróun. Mikil áhersla er lögð á trúnað og allt kapp lagt á að niðurstöður rannsókna rati ekki til keppinauta. Önnur íslensk snyrtivörufyrirtæki eru til dæmis EGF, Sóley, Blue Lagoon og Ankra. Sum nýta sér þjónustu Matís og önnur ekki. Það þykir ekki eftirsóknarvert að rannsóknir af þessu tagi séu framkvæmdar af keppinautunum sjálfum. Nokkrir forsvarsmenn snyrtivörufyrirtækja, sem Fréttablaðið hafði samband við, töldu þetta fyrirkomulag mjög óeðlilegt og ekki til þess að ýta undir heilbrigð markaðsskilyrði. Þá var einnig bent á að Matís á sjálft um 30 prósent í fyrirtæki rannsóknarstjórans. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, sagði í samtali við Fréttablaðið að hann væri meðvitaður um þessi sjónarmið, en að trúnaðarákvæði í starfssamningum starfsmanna eigi að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Auk þess sé verkefnum beint til annarra starfsmanna ef líkur eru á því að hagsmunaárekstur geti komið upp. Hvað varðar eignarhlut Matís í félagi rannsóknarstjórans sagði Sveinn að það væri fyrirtæki sem væri að freista þess að búa til verðmæti úr vannýttri auðlind sem aðrir hefðu ekki sýnt áhuga á að nýta. Með því að styðja við starfsmenn Matís með þessum hætti væri búinn til hvati fyrir rannsakendur hjá Matís til að fara lengra með sína vinnu og búa til úr henni vöru atvinnulífinu öllu til heilla. „En við sjáum ekki fyrir okkur að þetta verði eilíflega í okkar höndum,“ sagði Sveinn aðspurður um hver framtíð UNA skincare væri.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira