Við erum í bráðri lífshættu við hvert fótspor Magnús Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2015 10:30 Gunni og Felix Gunnar Helgason og Felix Bergsson Bakaraofninn leikrit Visir/Pjetur
Gaflaraleikhúsið frumsýnir í dag barnafarsann Bakaraofninn eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson. Í þessu fjörlega verki fyrir alla fjölskylduna opna Gunni og Felix veitingastaðinn Bakaraofninn þar sem matargerð er lyst og lenda í alls kyns vandræðum og ævintýrum. Leikarar ásamt þeim félögum eru þau Elva Ósk Ólafsdóttir og Ævar Þór Benediktsson, leikstjóri er Björk Jakobsdóttir og tónlistin er eftir Mána Svavarsson, þann hinn sama og hefur samið alla tónlist fyrir Latabæjarþættina. „Við Felix höfum reyndar ekki leikið saman á sviði síðan í West Side Story árið 1995 þegar ég skaut hann til bana í lok hverrar sýningar,“ segir Gunni og hlær. „En nú erum við aftur sameinaðir á sviðinu og í brjáluðu stuði. Þessi skotárás í West Side Story hefur samt setið eitthvað í Felix mínum því um daginn henti hann í mig málningarfötu svo að vörin sprakk. Það sprungu reyndar allir líka úr hlátri og því var ákveðið að hafa þetta með í sýningunni. Nú fæ ég fjórar málningarfötur í fangið á hverri sýningu og Felix lofaði að passa sig betur,“ segir Gunni og hlær áður en hann bætir við: „Þetta málningarfötu atriði er aðeins eitt af mörgum áhættuatriðum í sýningunni. Við erum í bráðri lífshættu við hvert fótspor. Við erum svolítið undir áhrifum frá Vesturporti og ætluðum að láta fólk fljúga alveg hægri vinstri en lofthæðin er svo lítil í Gaflaraleikhúsinu að við ákváðum bara að búa til kjallara í staðinn og ég fæ að henda Felix niður í hann. „Við sem erum í að skrifa fyrir börn erum í bransanum að bjarga mannslífum. Bækur og leikhús fyrir börn eru svo mikilvægur þáttur í þroska þeirra, námsmöguleikum og framtíð. Við teljum því að það sé mörgum sinnum mikilvægara að gera gott barnaefni en fullorðinsefni og við leggjum okkur alla fram og við lofum góðri fjölskylduskemmtun í Gaflaraleikhúsinu á næstunni.“
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira