Mál Árna Johnsen einstakt Jakob Bjarnar skrifar 8. október 2014 12:16 Verði fasteignamati ekki breytt afturvirkt hefur Reykjavíkurborg ekki heimildir til að breyta álagningu fasteignagjalda.
Af upplýsingum frá Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar má álykta að mál Árna Johnsen, fyrrverandi þingmanns, sem auglýsir hús sitt til sölu sem er talsvert stærra en fasteignaskrá segir til um, sé einstakt.Vísir greindi frá málinu í gær, en hús í eigu Árna er skráð um 100 fermetrum minna en það er í raun og veru. Þetta þýðir einfaldlega það að Árni hefur ekki greitt fasteignagjöld af 90 fermetra eign, sem er ósamþykkt íbúð, en árleg gjöld af slíkri eign eru um 75 þúsund krónur á ári. Árni taldi þetta algengt í samtali við Vísi í gær en starfsmenn Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar þekkja ekki dæmi þess að mál af þessu tagi hafi komið upp. Í einstaka tilvikum hefur þó komið í ljós að eignir eru minni en samkvæmt skráningu. Í langflestum tilvikum er þá um að ræða örfáa fermetra. Ívar Örn Ívarsson, lögfræðingur hjá fjárstýringardeild Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar, segir í skriflegu svari við almennri fyrirspurn Vísis um fasteignaskráningar að fasteignagjöld séu lögð á í samræmi við fasteignamat sem Þjóðskrá ákvarðar. „Reynist raunstærð eignar umtalsvert stærri en skráð stærð hennar, og þar af leiðandi fasteignamat hennar of lágt, þarf að skoða hvort Reykjavíkurborg geti óska eftir endurupptöku á því hjá Þjóðskrá á grundvelli 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga. Þjóðskrá hefur talið sér heimilt, á grundvelli 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga, að leiðrétta fasteignamat afturvirkt hafi misritun eða reikningsskekkja af hálfu stofnunarinnar orðið þess valdandi að efnisleg ákvörðun um fasteignamat verði röng.“ Að sögn Ívars Arnar er það svo að verði fasteignamati ekki breytt afturvirkt hefur Reykjavíkurborg ekki heimildir til að breyta álagningu fasteignagjalda.Uppfært klukkan 17:40 Starfsmenn fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar vilja koma því á framfæri að svörin að ofan voru við almennri fyrirspurn Vísis. Þau svari ekki fyrirspurnum um fasteignir Árna Johnsen eða annarra borgarbúa.
Tengdar fréttir Óútskýrðir 100 fermetrar í húsi Árna Johnsen: „Ég veit ekkert um þetta“ Hús Árna Johnsen í Breiðholti er skráð 100 fermetrum minna en það er í raun. Um er að ræða íbúð ósamþykkta íbúð í kjallara hússins. Fasteignagjöld af sambærilegri íbúð í Reykjavík nema rúmlega 75 þúsund króna á ári. 7. október 2014 16:46 Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira
Óútskýrðir 100 fermetrar í húsi Árna Johnsen: „Ég veit ekkert um þetta“ Hús Árna Johnsen í Breiðholti er skráð 100 fermetrum minna en það er í raun. Um er að ræða íbúð ósamþykkta íbúð í kjallara hússins. Fasteignagjöld af sambærilegri íbúð í Reykjavík nema rúmlega 75 þúsund króna á ári. 7. október 2014 16:46