Í nálgunarbann vegna gruns um heimilisofbeldi Jakob Bjarnar skrifar 8. október 2014 14:01 Maðurinn sem um ræðir er grunaður um gróft heimilisofbeldi. (Myndin er sviðsett.)
Hæstiréttur staðfesti í dag ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, frá 25. september að maður nokkur skuli sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni í fjórar vikur, þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili sitt og sambúðarkonu sinnar. Svæðið miðast við 50 metra radíus umhverfis heimilið. Jafnframt er lagt bann við því að varnaraðili veiti konunni eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana á annan hátt. Maðurinn vildi ekki una þessu og áfrýjaði málinu til Hæstaréttar. Í greinargerð lögreglustjóra kemur meðal annars fram að hann liggi undir sterkum grun um að hafa miðvikudaginn 24 september 2014 ráðist á sambýliskonu sína á sameiginlegu heimili þeirra að með því að sparka og slá hana ítrekað í höfuð og líkama. Konan hafi leitað í kjölfarið á slysadeild og reyndist með áverka sem samræmast lýsingum hennar af atvikum. Í læknisvottorði kemur fram að konan hafi hlotið opið sár á höfði, sem hafi þurft að sauma, yfirborðsáverka á öðrum hlutum höfuðs, heilahristing, yfirborðsáverka á framarmi, mar á öxl og upphandlegg og yfirborðsáverka á brjóstkassa.Uppfært 14:40Athugasemd blaðamanns!Upphafleg fyrirsögn þessarar fréttar var „Meintur heimilisboxari í nálgunarbann“. Fjölmargar athugasemdir hafa borist þar sem fólk hefur lýst því yfir að með þessari orðanotkun sé verið að gera lítið úr því máli sem til umfjöllunar er. Sú var ekki meiningin, ekki undir neinum kringumstæðum og því hefur fyrirsögninni verið breytt af tillitssemi við þá sem skilja orðið þannig -- og þakkar Vísir fyrir ábendingarnar.Sérstök athygli er vakin á því að vegna kerfis sem Vísir er keyrður á falla allar athugasemdir við fréttir út, við það að fyrirsögn er breytt.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira