Vill beinagrind steypireyðar til Húsavíkur Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2014 21:40 Steypireyðurin sem um ræðir rak á land í landi Ásbúða á Skaga í lok ágústmánaðar 2010. Mynd/Valur Örn Þorvaldsson
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að beinagrind steypireyðar sem rak á land á Skaga árið 2010 verði komið fyrir á Hvalasafninu á Húsavík. Kristján hefur lagt fram fyrirspurn til Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, þar sem hann spyr hver séu áform ráðherra um staðsetningu beinagrindarinnar. Kristján segir marga hafa minnst á beinagrind steypireyðarinnar nú í kjördæmaviku og vilji fá hana til Húsavíkur. „Hvalasafnið er reiðubúið að taka á móti beinagrindinni, en Bandaríkjamaður hefur meðal annars stutt verkefnið gagnvart því að taka á móti beinagrindinni og bæta við húsi gerist þess þörf,“ segir Kristján í samtali við Vísi. Kristján segir að allt hafi verið gert til að vernda beinagrindina á sínum tíma og hún unnin á einhvern ákveðinn hátt sem hann kunni þó ekki nákvæm skil á. „Beinagrindin er til og ég er að spyrja ráðherra af hverju beinagrindinni hafi ekki verið valinn staður á fyrsta og merkasta hvalasafni landsins á Húsavík, höfuðborgar hvalaskoðunar í Evrópu.“ Steypireyðurin sem um ræðir rak á land í landi Ásbúða á Skaga í lok ágústmánaðar 2010. Í kjölfarið ákvað ríkisstjórnin að verja tveimur milljónum króna til að ná beinagrind hvalsins og verka hana til geymslu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Í kjölfarið verður skoðað hvar best sé að geyma beinagrindina til lengri tíma og munu umhverfisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið fjalla um málið að höfðu samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúruminjasafn Íslands,“ sagði í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2010. Hvalrekar sem þessi eru mjög sjaldgæfir viðburðir hér á landi, en heila steypireyði hefur afar sjaldan rekið á land hér en aðeins er vitað um tvö óstaðfest tilvik frá 1980. Talið er að stofn steypireyðar hér við land sé innan við þúsund dýr. „Engin beinagrind eru til af steypireyði í landinu og örfáar til í heiminum og því er verðmæti og sýninga- og fræðslugildi slíkrar beinagrindar mjög mikið,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins frá 2010.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira