Óli Palli flytur ekki á Skagann vegna ódauns Jakob Bjarnar skrifar 9. október 2014 15:06 Óli Palli segist ekki vera viðkvæmur fyrir slorlykt, en þessi fnykur sé nokkuð sem ekki er búandi við.
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður, sem jafnan er kallaður Óli Palli, hefur ritað opið bréf til bæjarfulltrúa á Akranesi sem vakið hefur mikla athygli og mikil og viðbrögð, en þar gerir hann að umtalsefni óþolandi fýlu á Skaganum sem stafar frá „fiskhausa-þurrk-fabrikku“ sem staðsett er í bænum miðjum.Bréfið birtist í gær á Skessuhorni – fréttaveitu Vesturlands. Óli Palli, sem er frá Skaganum, upplýsir að hann hafi lengi ætlað sér að flytja aftur á Akranes eftir að hafa búið á höfuðborgarsvæðinu síðan 1991. Hann hafi haft augastað á gömlu húsi sem hann vill gjarnan gera upp og flytja þangað sig og sína en þegar hann heyrði að til stæði að það ætti að „festa hausaþurrkunarverksmiðju Laugafisks (HB Granda) í sessi til næstu framtíðar með fjárfestingu upp á nokkur hundruð milljónir króna og staðsetning á nýjum húsakynnum starfseminnar myndu jafnvel auka líkur á að lykt berist yfir glæsilegt Akratorgið á góðviðrisdögum,“ runnu á hann tvær grímur. Og Óli Palli spyr hvort virkilega sé ekki nóg landrými annarsstaðar innan bæjarmarka fyrir þessa starfsemi? Óli Palli lætur kné fylgja kviði og lýkur kröftugri grein sinni með því að skora á bæjarfulltrúa: „Ég skora á ykkur sem ráðið ferðinni á Akranesi í dag að hugsa ykkur vel um áður en þið takið minni hagsmuni fram yfir meiri. Ykkar er tækifærið og tækifærið er núna.“
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira