Þriggja ára bið eftir félagslegu húsnæði Sveinn Arnarsson skrifar 18. desember 2014 10:00 Oddviti VG telur þurfa að fjölga félagslegum íbúðum og setja þá sem séu í mestri neyð í forgang. Fréttablaðið/Auðunn
Allt að þriggja ára bið er eftir félagslegu húsnæði á Akureyri þrátt fyrir að bærinn eigi um 300 íbúðir til útleigu á félagslegum forsendum. 140 einstaklingar og fjölskyldur eru á biðlista. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun félagslegra íbúða í fjárhagsáætlun næsta árs hjá bænum en málið er þó til skoðunar að sögn formanns bæjarráðs. Akureyrarbær býður upp á allar stærðir af íbúðum, frá tveggja herbergja íbúðum til fimm herbergja fyrir stórar fjölskyldur. Bærinn niðurgreiðir leigukostnaðinn að einhverju leyti og er því leigan í slíkum íbúðum lægri en á almennum leigumarkaði. Lengsta biðin, samkvæmt húsnæðisdeild Akureyrarbæjar, er eftir tveggja herbergja íbúðum. Í þær íbúðir sækja einstaklingar og er biðin um þrjú ár. Um helmingur þeirra sem eru á biðlista á Akureyri eftir félagslegu úrræði eru að leita sér að tveggja herbergja íbúð.Sóley Björk Stefánsdóttir oddviti VGSóley Björk Stefánsdóttir, oddviti Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyrar, segir ástand félagslega kerfisins á Akureyri óboðlegt og huga þurfi að úrræðum. Hér sé um afar brýnan vanda að ræða og þurfi að fjölga íbúðum hratt til að ganga á biðlistann. „Vandinn er sá að einstaklingar í mikilli neyð eftir félagslegri íbúð fara í sérstakan forgang. Þeim einstaklingum hefur fjölgað upp á síðkastið og þýðir það að einstaklingar og fjölskyldur sem eru ekki í bráðri neyð eftir félagslegri íbúð haggast ekki á biðlistanum og þurfa því að bíða mjög lengi eftir að komi að þeim,“ segir Sóley. Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, segir þetta vera til skoðunar. „Þetta er eitt af þeim málum sem við verðum að skoða. Við vitum af vandanum og þurfum að taka á honum með einhverjum hætti. Þessi mál verða rædd innan bæjarkerfisins. Við munum ekki horfa fram hjá þessum málaflokki, síður en svo,“ segir Guðmundur. Sóley telur að þessi vandi geti einnig haft mikil áhrif á fólk sem ekki er að sækjast eftir íbúð. „Við höfum séð dæmi þess að rígfullorðnir foreldrar séu orðnir þreyttir á þessu ástandi. Á heimilinu búa kannski ennþá geðfatlaðir einstaklingar komnir á fertugsaldur og þeir einstaklingar komast ekki í úrræði vegna þess að þeir eru ekki í bráðri neyð. Það er eins og eina ráðið sé að vísa þeim á dyr til að þeir fái úrræði fyrr,“ segir Sóley.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira