Mótmæla aðgerðum lögreglu Viktoría Hermannsdóttir skrifar 25. nóvember 2014 11:30 Réttmætar aðgerðir í tilkynningu lögreglu segir að þeir telji aðgerðina réttmæta.
Boðað hefur verið til mótmæla við lögreglustöðina á Ísafirði á laugardag vegna aðgerða lögreglu við handtöku manns 17. nóvember síðastliðinn. Lögreglan á Vestfjörðum sendi í gær frá sér tilkynningu vegna málsins þar sem kemur fram að hún telji aðgerðir hafa verið réttmætar miðað við aðstæður. Maðurinn handleggs- og fingurbrotnaði við handtökuna. Lögreglan var kölluð að húsi á Ísafirði aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember vegna manns í sjálfvígshugleiðingum. Maðurinn var vopnaður hnífi og samkvæmt tilkynningu lögreglu bæði hótaði maðurinn og reyndi ítrekað að veita lögreglumönnum áverka með hnífnum. Þeir hafi reynt að fá manninn til þess að leggja frá sér hnífinn en þegar það hafi ekki borið árangur þá hafi kylfu og varnarúða verið beitt. Þegar það hafi ekki borið tilætlaðan árangur vopnuðust lögreglumenn, settu á sig varnarbúnað og skammbyssur í slíður. Maðurinn var í framhaldi handtekinn, færður á lögreglustöð og vakthafandi læknir kallaður til. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að í aðgerð lögreglu hafi vopnum ekki verið beitt. Boðað hefur verið til mótmælanna á Facebook og hafa um fimmtíu manns boðað komu sína á þau. Þar kemur fram að aðgerðum lögreglu sé harðlega mótmælt.
Tengdar fréttir Lögreglan á Ísafirði greip til skotvopna Maðurinn sem var í sjálfsvígshugleiðingum ógnaði lögreglunni með hnífi. 20. nóvember 2014 16:02 Lögreglumenn kærðir til ríkissaksóknara Lögreglan biður fólk um að sýna skilning. 24. nóvember 2014 18:21 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Lögreglan á Ísafirði greip til skotvopna Maðurinn sem var í sjálfsvígshugleiðingum ógnaði lögreglunni með hnífi. 20. nóvember 2014 16:02
Lögreglumenn kærðir til ríkissaksóknara Lögreglan biður fólk um að sýna skilning. 24. nóvember 2014 18:21