Útvarpsgjaldið er óvissuþáttur Hanna Ólafsdóttir skrifar 3. október 2014 07:30 Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV, segir að aðhalds verði áfram gætt. „
Það liggja ekki fyrir ákvarðanir um uppsagnir að svo stöddu. Það er hins vegar óvissuþáttur í þessu sem er niðurstaðan á fjárlögum. Það er einn lykilþáttur í rekstri félagsins hvernig útvarpsgjaldinu er stillt upp. Það er núna til skoðunar,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV, aðspurður hvort fyrirhugaðar séu uppsagnir á starfsfólki til að bregðast við fjárhagsvanda félagsins. Ríkisútvarpið átti ekki fyrir greiðslu af skuldabréfi sem var á gjalddaga í dag og hefur því verið samið um að fresta gjalddaga um þrjá mánuði. Félagið er yfirskuldsett og nema skuldir RÚV 5,5 milljörðum króna, stærstur hluti þeirra vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga félagsins. Ingvi Hrafn segir ekki hægt að ætla annað en að hægt verði að borga skuldina að fresti liðnum. „Félagið er auðvitað gjaldfært, það er engin spurning um það. Við erum með samkomulag við kröfuhafa.“ Fram undan er þó áframhaldandi aðhald í rekstri, auk þess sem unnið er að sölu eigna RÚV, meðal annars lóða og fasteigna. Ingvi Hrafn segir að ef fyrirætlanir um að lækka útvarpsgjaldið verulega miðað við það sem verið hefur verði að veruleika, þurfi að endurskoða lögbundin verkefni RÚV. „Hlutverk RÚV er skilgreint mjög rækilega í lögum og ef menn ætla að skera niður þjónustutekjurnar er eðlilegt að þeir ákveði í leiðinni hvaða þjónustu á að fella niður.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira