Nokkur þúsund urðu fyrir árás tölvuþrjóta Svavar Hávarðsson skrifar 1. október 2014 07:15 Almenningur verður sífellt að vera á varðbergi gagnvart netárásum hvers konar. nordicphotos/gettyimages
Tölvuþrjótar sendu skilaboð á þúsundir Íslendinga í september í tilraun til að komast yfir aðgangsorð að heimabönkum en uppskera árásarinnar var rýr. Almenningur er berskjaldaðri fyrir netárásum með aukinni snjallsímanotkun. Þegar vika var liðin af september bárust fréttir af tilraunum tölvuþrjóta til að komast yfir aðgangsorð að heimabönkum. Tölvupóstur var sendur til Íslendinga frá netföngum sem líktust netföngum íslenskra banka. Strax í kjölfarið sendu allir bankarnir ásamt netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar og Ríkislögreglustjóra frá sér sameiginlega fréttatilkynningu, til að vara við árásinni. Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar sem netöryggissveitin CERT-ÍS tilheyrir, segir ljóst að pósturinn barst þúsundum manna, en heildarfjöldi þeirra sem fyrir árásinni varð, er ekki þekktur. „Því miður er það þannig að ekki virðist skipta máli hvort svona póstur er skrifaður á vondri íslensku, fólk smellir samt. Ég held að enginn hafi lent í umtalsverðu tjóni, enda fór strax af stað aðgerð sem lokaði á síðuna sem fólki var ætlað að fara inn á. Aðgerðir okkar miðuðust við það,“ segir Þorleifur.Þorleifur Jónasson.Þorleifur játar því að þess séu sýnileg merki að netárásir að utan, og beinast að íslenskum almenningi, séu að breytast í þá átt að óprúttnir aðilar vandi sig meira en áður var og fólk verði því að vera enn betur á varðbergi en áður. Þekkt eru dæmi, t.d. svokölluð Nígeríubréf, þar sem þýðingarvélar eru notaðar til að berja saman skilaboð sem flestir sjá strax í gegnum. Núna virðist þetta vera að breytast, í einhverjum tilvikum. En að fleiru er að hyggja, að sögn Þorleifs. Útbreidd notkun snjallsíma gerir það að verkum að fleiri eru líklegri til að opna svona sendingar. Skjárinn er minni, og viðmótið öðruvísi, svo fleiri virðast falla í gildruna. Viðmælendur Fréttablaðsins, bæði innan bankanna, stofnana og fyrirtækja, eru sammála um að íslenskur almenningur eigi að vera á verði sem aldrei fyrr. Jafnvel atburður eins og eldgosið í Holuhrauni, með allri þeirri umfjöllun sem því fylgir, getur fjölgað netárásum hérlendis fyrir það eitt að umfjöllun um landið er meiri en ella.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Útför Björgvins Halldórssonar Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira