Það mun bæði heyrast til okkar og sjást Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. september 2014 10:30 "Nemendur og kennarar verða með kórónur í mismunandi litum eftir bekkjum,“ segir Björg og hlakkar til afmælisins á morgun. Fréttablaðið/GVA „
Afmælisveislan stendur frá klukkan hálf tólf til hálf tvö. Við byrjum á skrúðgöngu um hverfið sem Skólahljómsveit Kópavogs leiðir með tilheyrandi lúðrablæstri,“ segir Björg Baldursdóttir, starfandi skólastjóri hins tvítuga Smáraskóla í Kópavogi. „Nemendur og kennarar verða með kórónur í mismunandi litum eftir stigum. Það mun því bæði heyrast til okkar og sjást.“ Björg segir tónlist verða leikna á sal og verk núverandi og fyrrverandi nemenda verða til sýnis inni í skólanum. Úti við verður svo farið í alls konar leiki. Þar verður hoppukastali, boltar sem krakkar geta skriðið inn í og „fótboltaspil“ með lifandi fólki sem stillir sér upp við strengi og spilar eins og um leikfang sé að ræða. Svo, eins og í öllum góðum afmælum, verður boðið upp á köku, kaffi og djús að sögn Bjargar. „Við fáum stóra köku frá Jóa Fel, hann er einn þeirra foreldra sem tengjast skólanum,“ segir hún og kveðst vonast til að sjá sem flesta velunnara. Nemendum við skólann hefur fækkað frá því í upphafi, að sögn Bjargar. „Hér voru lausar kennslustofur umhverfis skólahúsið fyrstu árin, enda er barnafjöldinn yfirleitt mestur í nýjum hverfum, svo fækkar í þeim aldurshópi en fjölgar aftur og nær einhverju jafnvægi.“ Eitt af því sem einkennir starf Smáraskóla er áhersla á útivist enda er skólinn vel staðsettur í Kópavogsdalnum. „Við notum dalinn til útivistar og lærdóms,“ segir Björg. „Skoðum náttúruna og lífríkið, tökum til dæmis sýni úr læknum reglulega og gerum á því rannsóknir. Svo er stutt niður í leiruna við voginn og auðvelt að komast þangað um göngin undir Hafnarfjarðarveginum,“ lýsir hún. Stærsta útivistarverkefni skólans sem komin er hefð á er Laugavegsganga 8. bekkjar, milli Landmannalauga og Þórsmerkur, með gistingu í skálum á leiðinni. „Það er afskaplega mikil ánægja með Laugavegsgönguna,“ segir Björg. „Sumir nemendur hafa sagt þegar þeir yfirgefa skólann að sú gönguferð standi upp úr þegar þeir hugsi til baka. Þetta eru stórir hópar sem við förum með, 40 til 60 manns, og við þurfum að panta gistingu í skálunum með löngum fyrirvara, alltaf lengri og lengri eftir því sem ferðamönnum fjölgar.“ Kennslustofur og aðrar vistarverur Smáraskóla eru ekki númeraðar heldur nefndar eftir örnefnum í Kópavogi. Eitt af því gert hefur verið í tilefni afmælisins nú er að afla upplýsinga um þá staði sem stofurnar heita eftir, að sögn Bjargar. „Kópavogur á stórt land sem auðugt er af örnefnum og sköpunargáfa nemendanna hefur nýst vel við að teikna myndir sem tengjast þeim.“ Smáraskóli er við Dalsmára 1 í Kópavogi og er fyrir börn á aldrinum sex til fimmtán ára. Valgerður Snæland Jónsdóttir var skólastjóri frá stofnun hans til ársins 2007. Núverandi skólastjóri, Friðþjófur Helgi Karlsson, er í ársleyfi og Björg Baldursdóttir sinnir starfinu í fjarveru hans en hún hefur verið aðstoðarskólastjóri frá 2010.
Mest lesið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Fleiri fréttir Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Sjá meira