Gamli Kennaraháskólinn hýsi framhaldsskóla Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. september 2014 07:00 Kristín segir mörg verkefni í undirbúningi eða búið að ljúka. fréttablaðið/GVA
Búið er að samþykkja deiliskipulag á svæði Háskóla Íslands fyrir nýtt hús menntavísindasviðs skólans. Menntavísindasvið hefur núna aðstöðu í Stakkahlíð og Bolholti, þar sem Kennaraháskólinn var áður. „Við gerum ráð fyrir því að þau komi á lóðina, vonandi eins fljótt og hægt er,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Hún segir að nýtt hús verði staðsett í námunda við VR I og VR II á horni Suðurgötu og Hjarðarhaga. Kristín segir að gamla húsnæðið í Stakkahlíð verði væntanlega selt og það hafi verið rætt að það gæti hentað vel fyrir framhaldsskóla. Hún segir húsnæðið vera mjög gott en stúdentar og starfsfólk menntavísindasviðsins þurfi að vera nær háskólasvæðinu. Hún segir ekki víst hvenær bygging húsnæðisins gæti hafist. „Það er í rauninni undir menntamálaráðuneytinu komið. Þetta yrði fjármagnað af ríkinu,“ segir Kristín. Kristín og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í gær samning um lóðir háskólans. Samningurinn tekur til um 400 þúsund fermetra landsvæðis og í tilkynningu segir að hann marki ákveðin tímamót í samskiptum Reykjavíkurborgar og Háskólans. Tekin eru af öll tvímæli um afmörkun eignarlóðar háskólans, sem og hvaða lóðir falla undir lóðarleigu en þar eru lóðir fyrir kennsluhúsnæði nú undanskildar. „Það skiptir máli fyrir okkur hvað varðar árleg gjöld,“ segir Kristín. Hún segir að mörg verkefni séu annaðhvort í undirbúningi eða búið að ljúka við sem breyti ásýnd lóðarinnar og borgarinnar. „Ég nefni sem dæmi stúdentagarðana hér á vísindagarðalóðinni, svo byggingu Alvogen fyrir rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Ég nefni líka deiliskipulag fyrir stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, sömuleiðis deiliskipulag fyrir Hús íslenskra fræða,“ segir Kristín og bætir við að spítalalóðin skipti mjög miklu máli vegna þess að þar verði heilbrigðisvísindagreinarnar allar til húsa. Þá bendir hún á viljayfirlýsingu um að þróa starfsemi Háskóla Íslands inn á Fluggarðasvæðið. „Það skiptir mjög miklu máli vegna þess að þetta er eina áttin sem skólinn getur stækkað á næstu áratugum,“ segir Kristín, en bendir jafnframt á að ekkert hafi verið ákveðið hvað verði á Fluggarðasvæðinu.
Mest lesið Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Veður Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira