Lífið

HM heima í stofu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Tölvuleikur 

World Cup 2014



EA Sports gefur nú í fimmta sinn út tölvuleik samhliða heimsmeistarakeppni. EA Sports World Cup er sá glæsilegasti sem fyrirtækið hefur gefið út, um það er ekki deilt.

Leikurinn byggir á því sem hefur gengið vel í eldri leikjunum, enda kannski óþarfi að finna upp hjólið í sífellu. Þrátt fyrir glæsilegar umbúðir, flotta grafík og gott hljóð, er leikurinn ekki laus við litla pirrandi galla. Spilurum er boðið í ferðalag til Brasilíu en í staðinn þurfa þeir að gefa afslátt á raunveruleikanum, því gallarnir á leiknum gera leikinn óraunverulegan.

Að mínu mati hafa leikirnir sem tengjast stórmótum alltaf verið skemmtilegastir. Þeir fanga stemninguna og færri leikmenn í leiknum gefur framleiðendum tækifæri til að fanga séreinkenni hvers og eins. Aldrei hefur EA Sports tekist betur í því en nú. En þegar leikurinn er spilaður verður maður var við alls konar galla. Þeir tengjast liðsvali á HM, og eiga bara við lið Englands, af einhverri furðulegri ástæðu. Einnig er erfitt að fá að vita hvaða leikmenn í liðinu manns eru þreyttir, þegar komið er á síðari stig HM. Spilunin er að mestu góð, en gallar úr fyrri Fifa-leikjum gera vart við sig. Leikmenn haga sér oft eins og þeir hlaupi eftir fyrirfram ákveðnum brautum og tölvan skorar óeðlilega oft úr fráköstum, sem er afar pirrandi fyrir kappsfulla spilara.

Fyrir okkur Íslendinga er stærsti kosturinn væntanlega sá að við getum fengið að leika gegn Króatíu aftur og komið liðinu á HM. Þá byrjar maður einum fleiri og hálftími eftir, en staðan er tvö - núll fyrir Króötum.

EA Sports hafa verið framar öðrum í netspilun og halda þeim titli í þessum leik. Nýjar leiðir eru farnar í að fanga stemningu í miðjum leik, með því að sýna aðdáendur í höfuðborg landanna sem spila og viðbrögð þjálfaranna. Boðið er upp á útvarpsþætti í stað tónlistar, sem er frábær viðbót fyrir vana Fifa-spilara. Útkoman er því flottar umbúðir, sem eru með nokkra smávægilega og pirrandi galla. Góð stemning, flottur leikur og nauðsynlegur undirbúningur fyrir HM-aðdáendur sem vilja upplifa HM heima í stofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.