Verkföll næsta mánuðinn geta raskað ferðum þúsunda Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 13. maí 2014 07:00
Fari fram sem horfir verða miklar raskanir á flugi Icelandair á næstunni, með tilheyrandi óþægindum fyrir þúsundir farþega. Flugmenn eru í ótímabundnu yfirvinnubanni og flugfreyjur hafa boðað yfirvinnubann frá og með næsta sunnudegi semjist ekki við þær. Yfirvinnubann þessara hópa getur valdið því að fella verði niður flug með skömmum fyrirvara og falli eitt flug niður getur það haft keðjuverkandi áhrif. Einstaklingar og fyrirtæki í ferðaþjónustu eru orðin verulega áhyggjufull vegna verkfallsaðgerða flugmanna. Jafnframt veldur áhyggjum að samningar eru lausir við fleiri hópa. Flugfreyjur hjá Icelandair hafa boðað tímabundið verkfall 27. maí, sólarhringsverkfall er boðað 6. júní og annað 14. júní. Ótímabundið verkfall hefst 19. júní. Atvinnurekendur hafa boðið flugfreyjum 2,8 prósenta launahækkun en því hafa þær hafnað. Þá er ósamið við flugvirkja sem vinna hjá Icelandair. Kjaradeilu þeirra hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Flugvirkjar hafa ekki boðað til aðgerða. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna grafalvarlega. Hún segir að aðgerðir flugmanna hafi þegar valdið miklu tjóni. Margir hafi afbókað á hótelum. Þá hafi veitingastaðir, rútufyrirtæki og bílaleigur tapað viðskiptum. ?Stærsti hluti tekna í ferðaþjónustu kemur inn í maí, júní, júlí og ágúst. Hver dagur skiptir því miklu,? segir Helga og bætir við að hætta sé á að orðspor landsins bíði hnekki og það geti haft í för með sér tekjutap í framtíðinni. Stjórn Bílgreinasambandsins hefur miklar áhyggjur af afleiðingum verkfalls flugmanna Icelandair. Bílaleigur hafi pantað hátt í 4.000 bíla fyrir sumarið auk þess sem verkfallið hafi áhrif á hópferðafyrirtæki. Bílgreinasambandið segir að verkfalli megi líkja við náttúruhamfarir eins og eldgos, þar sem mikil óvissa er um framgang og hversu lengi hamfarirnar vara. Þá endurskoði ferðamenn áætlanir sínar. Margra klukkustunda sáttafundur var í kjaradeilu flugmanna í gær og stóð hann fram á kvöld. Mikið ber enn í milli í deilunni.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Sjá meira