Tónlist

Þungarokk og þjóðlagapönk

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
 Snæbjörn er í fimm hljómsveitum og Baldur í sex. Skálmöld á þó sérstakan sess í hjarta þeirra beggja.
Snæbjörn er í fimm hljómsveitum og Baldur í sex. Skálmöld á þó sérstakan sess í hjarta þeirra beggja. Vísir/Vilhelm
Bræður munu berjast

og að bönum verðast,

munu systrungar

sifjum spilla;

hart er í heimi,

hórdómur mikill,

skeggöld, skálmöld,

skildir eru klofnir,

vindöld, vargöld,

áður veröld steypist,

mun engi maður

öðrum þyrma.

Þetta erindi úr Völuspá á ekki við bræðurna Snæbjörn og Baldur Ragnarssyni. Þótt þeir séu báðir í hljómsveitinni Skálmöld og geri sitt besta til að koma á skeggöld þá eru þeir mjög nánir og segjast ekki einu sinni hafa slegist sem börn. Þeir eru saman í fjölmörgum hljómsveitum, hafa unnið saman í leikhópnum Lottu og fleiri leikverkum, segjast hittast um það bil 200 daga á ári og vera í meira og minna sambandi þess á milli. Þessa dagana æfa þeir baki brotnu á Stóra sviði Borgarleikhússins þar sem plata þeirra Baldur, frá 2010, mun birtast áhorfendum í formi leikverks á föstudaginn kemur. En hvernig þróaðist þessi þungarokksplata yfir í leikhúsverk?



Snæbjörn: Við höfum flestir unnið mikið í leikhúsi og það lá alltaf sú hugsun að baki Baldri að þetta væri leikverk. Hvernig það nákvæmlega þróaðist að samræður við Borgarleikhúsið hófust man ég reyndar ekki, en hugmyndin hvarfaðist mjög hratt og nú er næstum komið að frumsýningu.“



Snæbjörn hefur skrifað nokkur leikrit og Baldur samið tónlist við þó nokkur leikverk en þeir segjast voðalega lítið skipta sér af því hvaða leið leikstjórinn, Halldór Gylfason, fari við uppfærsluna. „Allavega ekki ennþá,“ bætir Baldur við.



Áður en Skálmöld varð til voru þeir bræður þekktastir sem meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitanna frá Húsavík, þar sem þeir ólust upp. Hvernig þróuðust þeir frá sakleysislegum þjóðlagapönkurum yfir í þungarokksjötna?



Snæbjörn: „Við tveir höfum bara alltaf verið að spila tónlist. Það var mikil tónlist heima og okkur var kennt að tónlist væri bara tónlist. Ljótu hálfvitarnir voru bara enn eitt skrefið og Skálmöld eitt í viðbót. Reyndar er hugmyndin að baki eldgömul, við Björgvin, söngvari Skálmaldar, spiluðum þungarokk áður en við fengum bílpróf. Og auðvitað kom Baldur inn í þetta með okkur þegar hann var orðinn nógu gamall. Við erum voða lítið að búa til tónlist nema hinn bróðirinn sé með.“



Baldur: „Þegar þið Björgvin voruð að spila þungarokk og pönk var ég náttúrulega bara barn. Nokkrum árum seinna ert þú fluttur suður og ég að spila hardcore með félögum mínum á Húsavík. Það er geysilega aggressíft tónlistarform og skemmtilegt þannig að skrefin yfir í þungarokkið voru ekkert stór. Rætur okkar beggja liggja miklu nær þungarokkinu en Hálfvitunum.“



Faðir bræðranna var skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur og þeir voru aldir upp við klassískt tónlistarnám. Kom aldrei til greina að leggja klassíkina fyrir sig?



Snæbjörn: „Pabbi, og mamma reyndar líka, studdi okkur bara í því sem við vildum gera. Ef við vildum ekki verða snillingar á fiðlu, til dæmis, þá var það bara allt í lagi og fullur stuðningur við það. Helga systir okkar er miklu meiri pælari en við, hún er til dæmis góð á hljóðfæri, enda menntað tónskáld, á meðan við erum bara í þungarokkshljómsveit. Við fengum mjög klassískt uppeldi tónlistarlega, en skilaboðin voru samt alltaf að tónlist væri bara tónlist og það eina sem skipti máli væri að gera þetta almennilega.“



Baldur: „Við höfum ekki þennan metnað að vilja verða einleikarar. Okkar tónlistaráhugi hefur alltaf legið miklu meira í því að búa til tónlist. Ég er reyndar í á bilinu sex til tíu hljómsveitum, þannig að þungarokkið er engin þungamiðja í minni tónlistarsköpun. Þetta fordómaleysi gagnvart tónlistartegundinni var góður grunnur og ekki síður þau skilaboð að maður ætti að leggja sig allan í hana sama hvaða skilgreiningu hún fengi.“



Snæbjörn: „Já, og setja eitthvað nýtt í þetta, pabbi hamraði mikið á því. Ekki reyna að semja eða spila eins og einhver annar heldur alltaf að setja eitthvað af sjálfum sér í tónlistina. Það er held ég lykillinn að því hvað við erum óhræddir við að gera furðulega hluti.“



Talandi um furðulega hluti, þú ert á leið í Eurovision, hvað finnst þér um það?



„Já, andskotinn, en ef það er hringt í mann og maður beðinn að syngja bakrödd með Óttari Proppé þá segir maður auðvitað bara já, annað kemur ekki til greina. Þetta verður bara skemmtilegt. Góðir drengir, gott lag og bara gleði.“



Það eru sex ár á milli bræðranna og eðlilegt að álykta að Snæbjörn hafi að einhverju leyti alið Baldur upp í tónlistinni en þeir harðneita því.



Snæbjörn: „Ég var ekkert að ala hann upp og það voru aldrei nein átök á milli okkar. Við vorum strax bara voða miklir einstaklingar. Baldur fór til dæmis ekkert sömu leið og ég í tónlistinni framan af, alls ekki. Við erum líka mjög ólíkir í tónlistarhugsun í dag.“



Baldur: „Já, það er sko alveg óhætt að segja það.“



Textar Snæbjarnar við tónlist Skálmaldar hafa líka vakið athygli og þykja ólíkir því sem aðrir eru að gera. Skiptir það hann miklu máli að endurlífga gömlu bragformin?



Snæbjörn: „Pabbi kenndi mér þetta allt þegar ég var lítill. Bæði bragfræði og goðafræði. Svo hrærðist þetta bara svona saman í höfðinu á mér. Það var mikill áhugi á goðafræðinni, upprunanum og Íslendingasögunum á heimilinu, án þess að því væri neitt troðið ofan í okkur og það var í rauninni stór partur af því að Skálmöld varð til. Ég vissi frá upphafi að ég ætlaði að yrkja svona texta, um þetta efni. Mér fannst bara svo skrítið að það væri enginn búinn að gera þetta. Það hentar mjög vel að yrkja montið og kjarnyrt því það syngst svo ofboðslega vel. Mér finnst líka gaman að þetta hefur orðið til þess að fólk á okkar reki og yngra er allt í einu farið að pæla í bragfræði, goðafræði og uppruna okkar.“



Þessi áhersla á upprunann og goðafræðina hefur oft verið tengd við stefnu þjóðernissinna eða nýnasista, hefur ekkert verið reynt að klína þeim stimpli á ykkur?



Baldur: „Jú, jú, það hefur verið reynt. Við höfum fengið alls konar óhróður inn á heimasíðuna okkar, en við bara hjólum í það og kæfum það í fæðingu. Það er svo himinlangt frá því sem við trúum á.“



Snæbjörn: „Það er líka óþolandi þegar einhverjir svona drullusokkar eru að reyna að eigna sér það sem maður er að gera. Þetta stendur engan veginn fyrir það sem nýnasistar trúa á.“



Þið eruð báðir í öllum þessum hljómsveitum, Snæbjörn vinnur á auglýsingastofu frá níu til fimm virka daga, Baldur hefur verið á kafi í leikhústónlistinni. Er einhver tími til að sinna einhverjum öðrum áhugamálum?



Snæbjörn: „Já, já, en þau fara nú ekkert hátt núna. Tónlistin hefur alltaf verið áhugamál númer eitt. Leiklistin hefur minnkað, en hún er nú samt alltaf bak við eyrað.“



Baldur: „Tónlistin er eina áhugamálið sem maður getur ekki hunsað. Hún öskrar alltaf á mann og það er enginn séns að sinna henni ekki. Og með öllu þessu spileríi þá fer ekki hjá því að sófinn heima skori hátt þegar maður á frí. Ég reyndar lét það eftir mér að drífa mig í ferðalag, er rétt kominn heim eftir þriggja mánaða flakk um Suður-Ameríku, en svo kom maður auðvitað bara heim aftur til að spila.“



Er ekkert erfitt að hafa svona mörg ólík pródjekt í gangi í einu?



Snæbjörn: „Við eigum ekki börn, það munar miklu. Langflestir í kringum okkur, allir í Skálmöld til dæmis, eru með fjölskyldur og þurfa að sinna þeim. Við eigum bara kærustur og komum heim þegar okkur sýnist. Þær eru auðvitað frábærar og það þarf að sinna þeim, ekki misskilja mig, en það er auðveldara að hagræða tímanum með kærustu en með börn.“



Baldur: „Þær eru voðalega duglegar. Þarf ekki að hátta þær klukkan níu og þær sjá alveg um að fá sér að borða sjálfar. En svona í alvöru þá munar það svakalega miklu að vera ekki með börn. Hinir í hljómsveitunum græða líka á því þar sem þeir geta verið að sinna börnunum sínum á meðan við erum að vasast í málunum.“



Þungarokk er oft tengt uppreisn unglingsáranna, sjáið þið fyrir ykkur að vera enn á sviðinu með Skálmöld um sextugt?



Snæbjörn: „Já, hvers vegna ekki? Ég sé allavega ekki sjálfan mig fyrir mér að stofna ballband sem syngur bara „Ú, beibí, ég elska þig mikið.“



Baldur: „Það gildir það sama um Ljótu hálfvitana og Skálmöld. Þær eru drifnar áfram af ofboðslegum áhuga allra meðlima á því sem verið er að gera. Hálfvitarnir eru níu ára band og Skálmöld að verða fimm ára og þetta er ennþá bara ofboðslega skemmtilegt. Á meðan okkur finnst það get ég ekki séð nokkra ástæðu til að hætta. Það skilar sér líka til áhorfenda og ég held að stór hluti af vinsældum Skálmaldar sé því að þakka hvað við sjálfir höfum brennandi áhuga á tónlistinni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×