Tilnefndur til færeysku tónlistarverðlaunanna Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 14. mars 2014 10:30 Svavar Knútur á eitt vinsælasta lag síðasta árs í Færeyjum. „
Þetta er æðislegt. Mér finnst ótrúlega gaman að vera tilnefndur. Það er mikill heiður,“ segir tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Hann er tilnefndur, ásamt færeyska tónlistarmanninum Marius, fyrir lag ársins 2013 á færeysku tónlistarverðlaununum, Faroe Music Awards, sem veitt eru í fyrsta sinn núna á laugardaginn. Lagið heitir Tokan og hefur verið afar vinsælt í Færeyjum. „Við kynntumst í söngvaskáldasmiðju á Sámsey í Danmörku en okkur var báðum boðið í hana af hátíðinni Copenhagen Songwriting Festival. Við vorum settir saman í að semja lag og ákváðum að gera lag sem sameinar íslenska og færeyska reynslu, upplifun og sýn. Lagið var samið bæði á íslensku og færeysku og sungið á báðum tungumálum til skiptis. Við tókum upp tvær útgáfur af laginu, hans útgáfu og mína. Mín útgáfa er kammerútgáfa og hans meira rokk og elektróník. Hans útgáfa fór í útvarp en við gerðum myndband við mína útgáfu,“ segir Svavar Knútur sem hefur aldrei verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna. „Nei, ég er ekki töff á Íslandi.“ Tónlistarmaðurinn getur ekki verið viðstaddur hátíðina á laugardaginn þar sem hann flýgur til Þýskalands á sunnudag á tónleikaferðalag í tvo og hálfan mánuð. Hann yfirgefur samt ekki Ísland án þess að kveðja landsmenn. „Ég verð með kveðjutónleika í kvöld á Rosenberg. Ég verð með hljómsveit í fyrsta sinn í mörg ár og ætla að flytja alls konar efni.“)
Mest lesið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið „Langar fyrst og fremst að mínar stelpur eigi sem best líf“ Lífið Fleiri fréttir Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein