Barðist um réttinn að Svani Guðbergs Ugla Egilsdóttir skrifar 23. janúar 2014 09:00 Ása Helga Hjörleifsdóttir lærði kvikmyndagerð við Columbia-Háskólann í New York. Fréttablaðið/Pjetur
Mynd sem Ása Helga Hjörleifsdóttir hyggst gera eftir bókinni Svaninum eftir Guðberg Bergsson var valin á Berlinale Co-production-markaðinn. „Vonandi leiðir þetta til þess að við getum farið í tökur fljótlega,“ segir Ása Helga. Vintage Pictures framleiðir myndina. Handritið er tilbúið, en markaðurinn gerir Ásu kleift að kynna sig fyrir hugsanlegum meðframleiðendum að myndinni. „Berlinale Co-production er einn stærsti kvikmyndamarkaður í Vesturheimi. Það væri óskandi að við nældum okkur í útlenska meðframleiðendur á þessum markaði.“ Ásu hefur lengi langað að gera kvikmynd eftir þessari bók. „Það gerðist eitthvað þegar ég las þessa bók sem varð til þess að mig langaði að gera bíómyndir. Þessa baksögu gat ég notað í sumar þegar ég var að berjast fyrir réttinum til þess að gera myndina.“ Ása Helga þurfti að keppa um réttinn að bókinni við aðra kvikmyndagerðarmenn. „Núna síðast sóttust erlendir kvikmyndagerðarmenn eftir réttinum, en ég naut trausts Guðbergs fyrir þessu verkefni. Hann hefur verið mér hliðhollur frá upphafi. Ég hef unnið að handritinu frá því ég var að læra kvikmyndagerð við Columbia-háskólann.“ Ása Helga segir að líklega hafi Guðbergur tengt sig við eitthvað í handriti hennar. „Það er ekki síst existensíalisminn í bókinni sem heillaði mig og ég reyni að halda honum í handritinu. Annar þráður í bókinni hans sem ég reyni að miðla í handritinu eru ákveðnar hliðstæður í náttúru mannsins og í náttúrunni umhverfis manninn.“ Þótt Ása Helga elski bókina segir hún að bíómyndin verði allt annað listaverk. „Ég ætla mér að nýta möguleika kvikmyndaformsins. Í sögunni er mikið af innri einræðum hjá aðalpersónunni sem er níu ára barn. Það er krefjandi að breyta því í myndmál, en ég hef ýmsar hugmyndir.“ Alls eru 39 verkefni alls staðar að úr heiminum valin á Berlinale Co-production-markaðinn. Þar af eru tíu myndir sem eru fyrstu myndir leikstjóra í fullri lengd. Svanurinn verður fyrsta kvikmynd Ásu í fullri lengd, en hún hefur áður gert stuttmyndina Ástarsögu. „Af þessum tíu eru þrjár valdar sem þykja sérstaklega efnilegar. Ég fékk að vita það í gær að Svanurinn er ein af þessum þremur. Ástarsaga hefur hjálpað mér við að sanna mig sem leikstjóri, en hún hefur farið víða og fengið mörg verðlaun, og hún hefur vafalaust hjálpað óbeint til við að koma Svaninum inn á hátíðina. Hún gefur einhverjar hugmyndir um það hvernig mynd eftir mig í fullri lengd verður.“
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Lífið Fleiri fréttir Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Sjá meira