Sameinast á Íslandsmóti í karaókí Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. janúar 2014 11:00 Böðvar Reynisson, einn eigenda Hendrix, boðar bjarta tíma í karaókímenningu þjóðarinnar. fréttablaðið/valli „
Það verður öllu tjaldað til og ég reikna ég með að flestar, ef ekki allar helstu karaókístjörnur landsins mæti,“ segir Böðvar Reynisson, einn eigenda skemmtistaðarins Hendrix sem stendur fyrir Íslandsmóti í karaókí í kvöld. Á staðnum er kominn einn flottasti karaókíbúnaður sem sést hefur á landinu og syngur þátttakandinn í gegnum sama hljóðkerfi og stærstu sveitir og dj-ar landsins sem skemmta á staðnum nota. Þá verður ekkert til sparað í ljósadýrð svo söngvarinn verður svo sannarlega í sviðsljósinu. „Ég hef talað við nokkrar af skærustu stjörnum karaókíbransans á Íslandi en hann er nokkuð stór á heimsvísu,“ segir Böðvar sem gerir ráð fyrir mikilli og skemmtilegri keppni í kvöld. Eins og flestir vita þá koma oft í ljós leyndir hæfileikar þegar í karaókí er komið og er Böðvar sannfærður um að fjöldi hæfileikaríkra einstaklinga komi fram á sjónarsviðið í kvöld. Karaókí hefur lítið verið stundað á staðnum hingað til en gert er ráð fyrir breytingu í þeim efnum með tilkomu nýju karaókígræjanna. „Þetta á eftir að stækka í framtíðinni, það er alltaf erfitt að byrja svona og það tekur tíma að víkka flóruna. Það er svo mikið af hæfileikaríkum karaókísöngvurum þarna úti.“ Yfir tólf þúsund lög eru í boði sem stendur og bætist stöðugt á lagalistann. „Stærsti hluti laganna er erlendur en Birgir Jóhann Birgisson, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitunum Sálinni hans Jóns míns, Hvar er Mjallhvít? og Þúsund andlitum, vinnur nú hörðum höndum að því að búa til karaókíútgáfur af íslenskum lögum,“ útskýrir Böðvar. Stefnt er að því að gera karaókíviðburði algengari á staðnum. „Þetta verður haldið reglulega en það þarf auðvitað bara að byrja á byrjuninni og krýna fyrsta Íslandsmeistarann svo við getum haldið áfram. Þetta er þéttur en þröngur hópur og karaókíbransinn er svolítið klíkukenndur en við ætlum að brjóta þetta aðeins upp.“Íslandsmótið hefst klukkan 22.00 og kostar ekkert að taka þátt. Hendrix er til húsa á Stórhöfða 17 við Gullinbrú.
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira