Vinnslustöðin hefur stefnt fjármálaráðherra upp á hálfan milljarð Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. maí 2014 11:31 Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra upp á hálfan milljarð.
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins og krefst þess að fá endurgreitt sérstakt veiðigjald sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013, alls um 516 milljónir króna. Í tilkynningu frá Vinnslustöðinni kemur fram að ráðamenn fyrirtækisins uni almennum veiðigjöldum sem nam tæpum 200 milljónum króna. Málssóknin tekur því einungis til sérstaka veiðigjaldsins. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður flytur málið fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og hefur stefnan þegar verið birt ríkislögmanni fyrir hönd fjármálaráðherra. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 27. maí. Í tilkynningunni frá Vinnslustöðinni segir að veiðigjaldið sé „fordæmalaust mál í skattasögu hér á landi.“ Einnig er sagt að veiðigjaldið stangist á við „ófrávíkjanleg ákvæði í Stjórnarskrá Íslands“ „Vinnslustöðin telur að sérstaka veiðigjaldið sé í reynd eignarskattur sem lagður er á veiðiheimildir sem varðar eru af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Gjaldstofninn, svokölluð renta, sé hins vegar ekki tengdur ætluðu verðmæti veiðiheimildanna, heldur sé gjaldið fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 reiknað út frá rekstrarniðurstöðum ársins 2010. Þetta þýði í raun að verið sé að skattleggja rekstur fyrirtækisins afturvirkt, sem er óheimilt samkvæmt 77. grein stjórnarskrárinnar,“segir í tilkynningunni. Einnig kemur þar fram að ráðamenn Vinnslustöðvarinnar telji veiðigjaldið jafngilda eignaupptöku. „Með sérstöku veiðigjaldi er mjög hátt hlutfall af rekstrarafkomu Vinnslustöðvarinnar flutt í ríkissjóð. Engu er skeytt um áhrif þess á rekstur fyrirtækisins, fjárfestingargetu þess o.s.frv. Skatthlutfallið er svo hátt að það felur í reynd í sér upptöku eigna, sem fer í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar að mati fyrirtækisins.“
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Fleiri fréttir Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Sjá meira