Hlaut verðlaun á norrænu vísindaþingi skurðlækna Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2014 15:12 Vísir/Bylgjan
Tómas Andri Sveinsson, sjötta árs læknanemi, hlaut önnur verðlaun af tveimur sem veitt voru fyrir besta vísindaerindið á alþjóðlegu vísindaþingi norrænna hjarta- og lungnaskurðlækna sem fram fór í Noregi fyrir skömmu. Þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem Íslendingur vinnu þessi verðlaun. Tómas var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun, ásamt Tómasi Frey Guðbjartssyni, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítalanum. Tómas Andri kynnti á þinginu rannsókn sem hann hefur verið að vinna á svokölluðum bráðakransæðaaðgerðum. Þar sem fólk í mikilli lífshættu vegna kransæðastíflu fer í skurðaðgerð. Hann segir það erfiða við rannsóknina hafa hve fá tilfellin séu hér á Íslandi, þau séu kannski sex eða sjö á ári. Þá fór hann á sjúkrahús í Gautaborg þar sem hann fékk upplýsingar um tilfelli síðust sjö ára þar, en þar eru um 40-45 tilfelli á ári. „Við komum öllu saman í stærri rannsókn, en hún er ekki fullkláruð enn. Við erum enn að safna gögnum og stefnum á að fá enn fleiri sjúklinga inn,“ sagði Tómas Andri. Tómas Freyr sagði ástæðu þess að Tómas Andri fékk verðlaunin vera að verkefnið hafi mikið vísindalegt gildi, svo hafi hann fengið stig fyrir framsögnina og hvernig hann hafi matreitt erindið ofan í áhorfendur. Þá er sérstök stigagjöf fyrir hvernig spurningum sé svarað. „Þetta sýnir að það er alveg hægt að framleiða svona vísindi þrátt fyrir að þetta sé lítið land,“ sagði Tómas Freyr. „Núna eru nokkur sjúkrahús til viðbótar sem hafa áhuga á að vinna með okkur að þessu verkefni og stækka rannsóknina enn frekar. Tómas mun leiða þá vinnu.“
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Fleiri fréttir Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Sjá meira