Segja sátt rofna og málsmeðferðarreglur brotnar Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2014 15:28 Landvernd segir að fimm af þessum virkjanahugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um. Vísir/Vilhelm
Stjórn Landverndar mótmælir harðlega framkominni tillögu meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis um að færa átta virkjanahugmyndir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar. Í tilkynningu frá Landvernd segir að fimm af þessum hugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um. „Aðkoma verkefnisstjórnar, faghópa hennar og almennings er engin. Tillaga atvinnuveganefndar felur í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu. Þá er tillagan brot á grundvallarmarkmiði rammaáætlunarlaganna um að nýting byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati. Verði tillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt.“ Stjórn Landverndar bendir á að tillaga atvinnuveganefndar virðist vera í andstöðu við málsmeðferðarreglur rammaáætlunarlaga. Lögin kveði á um skýrt verklag. „Í fyrsta lagi er það umhverfisráðherra sem með lögunum er falið að leggja tillögur um flokkun virkjanahugmynda fyrir Alþingi. Í þessu máli hefur það ekki verið gert nema um þrjár hugmyndir í neðrihluta Þjórsár. Í öðru lagi verður ráðherra að byggja tillögur sínar á mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar um rökstudda flokkun virkjunarhugmynda, að teknu tilliti til umsagna almennings og hagsmunaaðila. Fimm af átta virkjunarhugmyndum sem atvinnuveganefnd leggur til að færa í nýtingarflokk hafa hinsvegar ekki fengið þessa faglegu umfjöllun. Í þriðja lagi hefur engin átta hugmyndanna verið metin með stigagjöf af faghópum verkefnisstjórnar, en það er hinn lögmæti undanfari mats verkefnisstjórnar.“Vilja að virkjanir í neðrihluta Þjórsár fari í biðflokk Stjórn Landverndar bendir á að verði tillagan samþykkt og verklag atvinnuveganefndar reynist í ósamræmi við lög, yrðu allar ákvarðanir sem byggja á samþykktinni jafnframt ólögmætar og að engu hafandi. „Stjórn Landverndar tekur fram að í athugasemdum samtakanna við afgreiðslu núgildandi rammaáætlunar lagði Landvernd til að allar virkjanahugmyndir á hálendinu yrðu settar í verndarflokk, þ.m.t. Hagavatnsvirkjun, Skrokkölduvirkjun og Hágönguvirkjanir, auk Hólmsárvirkjunar við Atley. Þá lagði Landvernd til að virkjanir í neðrihluta Þjórsár færu í biðflokk. Samtökin ítreka þetta mat sitt sem byggir á gögnum fyrri verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Stjórn Landverndar mótmælir tillögunni harðlega og krefst þess að atvinnuveganefnd virði leikreglur og viðleitni til sátta um stefnumótun í orkumálum á grundvelli rammaáætlunar,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira