„Man að ég stóð yfir henni, búinn að stinga hana“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 7. október 2014 12:40 „
Ég man að ég stóð yfir henni. Búinn að stinga hana,“ sagði 23 ára karlmaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sem gefið er að sök að hafa reynt að bana unnustu sinni á heimili þeirra í júlí síðastliðnum. Hann er ákærður fyrir manndrápstilraun en neitar sök og segir það ekki hafa verið ásetning sinn að verða henni að bana. Bar hann fyrir sig minnisleysi í skýrslutökum í dag en kannaðist við að hafa veitt henni einstaka áverka. „Það stóð aldrei til að meiða hana. Ég sé rosalega eftir þessu og mun iðrast þess sem ég gerði alla mína ævi. Ég sé eftir að hafa misst hana úr lífi mínu,“ sagði hann. Málsatvik eru þau að haldinn var gleðskapur á heimili þeirra í Grafarholti hinn 5. júlí síðastliðinn. Hópurinn hélt í miðbæ Reykjavíkur í kjölfarið en varð parið sundurorða þegar þangað var komið. Konan fór því heim og hann skömmu síðar eftir að hafa átt í einhverju orðaskaki við hana í gegnum smáskilaboð. Bæði voru þau drukkin. „Við rifumst og hann kallaði mig illum nöfnum. Hann hrindir mér þannig að ég fell við, og sparkar í andlitið á mér þannig að gleraugun brotna og ég fékk skurð á auga,“ segir konan. Maðurinn er sakaður um að hafa stungið unnustu sína þremur stungum með hnífi í hnakka, háls og kvið og að hafa veist að henni, sparkað í hana og slegið. Konan hlaut mjög alvarlega áverka, meðal annars djúpt sár sem gekk í gegnum kviðvegg hennar, inn á kviðarhol og rifu á nýra. Áverkar á andliti hennar voru einnig umtalsverðir, en efri vör hennar rifnaði í sundur, tönn hennar brotnaði og hlaut hún sár á öðru auga. Rankar við sér í blóðpolli „Það næsta sem ég man er þegar ég fer inn á bað og hann brýtur af hurðarhúnana. Ég sé hann þá labba inn á bað með hnífa. Ég hélt ég myndi deyja,“ segir hún. Um var að ræða tvo hnífa, annar með 15 cm löngu blaði og hinn með 21 cm blaði. „Ég man eftir fyrstu stungunni [í kvið] og ranka svo við mér í blóðpolli.“ Hnífana ætlaði maðurinn að nota til að taka sitt eigið líf, en hann skar sig þrjátíu sinnum í háls svo sauma þurfti 24 spor. Konan sagði manninn áður hafa beitt sig ofbeldi, bæði undir áhrifum áfengis og edrú. Þó ekkert í líkingu við þetta. Hann sagði það þó ekki rétt.Sambandið gott Bæði sögðu þau í vitnaleiðslum í dag að samband þeirra hafi verið gott, en þau höfðu verið saman í þrjú ár. „Skap hans var upp og niður en fyrir þetta kvöld hafði verið gott tímabil,“ sagði hún. Réttargæslumaður konunnar sagði hana hafa barist við mikið þunglyndi frá árásinni. Hún hafi upplifað mikla lífshættu, ofsaótta og björgunartilfinningu. Hún fer fram á átta milljónir króna í bætur. Ákæruvaldið telur að fullu sannað um tilraun til manndráps hafi verið að ræða, en verði maðurinn ekki fundinn sekur er þess krafist að hann verði ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Farið er fram á fimm ára fangelsisdóm yfir manninum. Verjandi mannsins fer fram á lægstu mögulegu refsingu.
Tengdar fréttir Flutt á slysadeild eftir hnífsstungu í Grafarholtinu Kona var flutt á slysadeild á fimmta tímanum í morgun eftir að hún varð fyrir hnífsstungu í heimahúsi í Grafarholti. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan konunnar en meintur árásarmaður var handtekinn skammt frá. 5. júlí 2014 10:10 Neitar að hafa ætlað að bana unnustu sinni 23 ára karlmanni er meðal annars gefið að sök að hafa stungið 21 árs gamla unnustu sína þremur stungusárum á heimili þeirra í Grafarholti í júlí síðastliðnum. 17. september 2014 09:18 Fara fram á fimm ára fangelsi: Segist ekki muna eftir árásinni Tuttugu og þriggja ára karlmaður, sem ákærður er fyrir að hafa reynt að bana 21 árs gamalli unnustu sinni á heimili þeirra í Grafarholti í júlí, segir kvöldið allt í móðu. 7. október 2014 11:21 Mest lesið „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Erlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Erlent Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Innlent Fleiri fréttir Einn ákærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Sjá meira
Flutt á slysadeild eftir hnífsstungu í Grafarholtinu Kona var flutt á slysadeild á fimmta tímanum í morgun eftir að hún varð fyrir hnífsstungu í heimahúsi í Grafarholti. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan konunnar en meintur árásarmaður var handtekinn skammt frá. 5. júlí 2014 10:10
Neitar að hafa ætlað að bana unnustu sinni 23 ára karlmanni er meðal annars gefið að sök að hafa stungið 21 árs gamla unnustu sína þremur stungusárum á heimili þeirra í Grafarholti í júlí síðastliðnum. 17. september 2014 09:18
Fara fram á fimm ára fangelsi: Segist ekki muna eftir árásinni Tuttugu og þriggja ára karlmaður, sem ákærður er fyrir að hafa reynt að bana 21 árs gamalli unnustu sinni á heimili þeirra í Grafarholti í júlí, segir kvöldið allt í móðu. 7. október 2014 11:21
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“