Eina sjoppan í Hvalfirði lokuð um helgina: Gaui litli stendur vaktina og verður með heitt á könnunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. október 2014 11:59 Gaui litli er tilbúinn í helgina og tekur vel á móti fólki í Hernámssetrinu. Vísir
Svo virðist sem hin sögufræga sjoppa Ferstikla í Hvalfirði verði lokuð um helgina en búast má við mikilli umferð um fjörðinn þar sem Hvalfjarðargöngin eru lokuð og vetrarfrí er í grunnskólum Reykjavíkur.Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Ferstiklu var sjoppunni lokað þann 28. september og eftir því sem Vísir kemst næst er eigandinn í útlöndum. Vísir hafði samband við Gauja litla sem rekur Hernámssetrið að Hlöðum í Hvalfirði. Hann var að hræra í randabrauð með rjóma og segist tilbúinn í helgina. „Já, ég verð með kaffi og með því og safnið verður opið. Það verður spennandi að sjá hversu margir koma hér við. Menn eru náttúrulega ekki vanir að keyra Hvalfjörðinn en vonandi stoppar fólk og gerir menningarferð úr þessu,“ segir Gaui litli. Hann ætlar að opna snemma í fyrramálið og hafa opið alla helgina. Hann segist þó ekki hafa hugmynd um hversu mikil umferð verður en laugardagstraffík um fjörðinn hefur aukist síðustu ár. „Það er allavega klósett hér ef mönnum verður brátt í brók,“ segir Gaui, léttur í bragði. Hvalfjarðargöngin verða lokuð frá klukkan 20 í kvöld og þangað til klukkan 6 á mánudagsmorgun. Marinó Tryggvason hjá Speli segir um hefðbundinn lokunartíma að hausti sé að ræða en loka þurfi göngunum yfir lengri tíma nú þar sem malbika eigi akreinina sem liggi frá norðri til suðurs. Hin akreinin verði svo malbikuð að ári.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Sjá meira