„Héraðsdómur byggði dóm sinn á röngum forsendum“ Hjörtur Hjartarson skrifar 28. maí 2014 19:15
Dómkvaddir matsmenn, sem í gær gáfu álit sitt á ákveðnum þáttum í gögnum lögreglunnar vegna morðsins á Karli Jónssyni, telja að þó sú atburðarrás sem stuðst var við í sakfellingu málsins sé röng að þeirra mati, hreinsi það ekki Friðrik Brynjar Friðriksson af þeim ásökunum sem á hann eru bornar. Verjandi Friðriks telur að sýkna ætti skjólstæðing sinn í Hæstarrétti, í það minnsta ætti að vísa málinu aftur heim í hérað. 16 ára fangelsisdómi Friðriks var áfrýjað og í kjölfarið þess krafist að dómkvaddir matsmenn yrðu skipaðir til þess að yfirfara blóðferlarannsóknir og aðrar vettvangsrannsóknir sem framkvæmdar voru í íbúð Karls. Jóhann Eyvindsson og Gillian Leak voru fengin til verksins. Í skýrslu þeirra er sett út á eitt og annað í rannsókn málsins og sumum tilgátum hreinlega hafnað, meðal annars þeirri að Karli hafi verið veittir áverkar á fleiri en einum stað í íbúðinni. „Allur málatilbúnaðurinn og allar forsendurnar sem byggt er á í héraðsdómi byggja, samkvæmt niðurstöðum matsmanna, á röngum forsendum. Það eina sem stendur þá kannski eftir er að ákærði er eini aðilinn, í dag eins og staðan er, hefur verið staðsettur á vettvangi á þeim tíma sem þessi verknaður átti sér stað,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Friðriks Brynjars. Í skýrslu matsmannanna segir jafnframt:„Það eru engir blóðferlar sem við fundum á munum Friðriks Brynjars sem gefa til kynna að hann hafi framkvæmt stunguárásina. Samt sem áður, útilokar ekki skortur á slíkum ferlum, þann möguleika að hann hefði geta valdið stungusárunum.”Sveinn Andri telur að með skýrslu matsmannanna hafi stoðum verið ýtt undir þá staðföstu trú hans að Friðrik sé saklaus. „Sjálfur er ég sannfærður um að hann hafi ekki framið þennan verknað. Það er svo margt í þessu máli sem er svo undarlegt og óútskýrt. Ég myndi telja það líklegra en ekki að Hæstiréttur vísi málinu aftur heim til héraðsdóms þannig að hægt sé að halda aðra aðalmeðferð þar sem þá önnur rannsóknarniðurstaða á vettvangi liggur fyrir. Sjálfur myndi ég sýkna ákærða.“ Hvort Sveini Andra verði að ósk sinni eða hann reynist sannspár skal ósagt látið. Hafa ber þó í huga að matsmennirnir voru aðeins fengnir til að yfirfara hluta sönnunargagnanna í málinu. Héraðsdómur Austurlands studdist við fjölmörg önnur atriði þegar dómur féll og því ekki ólíklegt, hvað þá útilokað að Hæstiréttur staðfesti dóminn.
Tengdar fréttir Lögregla notaði úreltar rannsóknaraðferðir Blóðrannsóknir á baðvaski morðvettvangsins hefðu þurft að vera mun ítarlegri. 27. maí 2014 15:08 Hundrað stungur skildu ekki eftir sig blóðslettur Hvít peysa sem Friðrik Brynjar var í þegar morðið var framið var ekki blóðug. 27. maí 2014 12:17 Ekki vitað hvaðan morðvopnið er fengið Vitnaleiðslur í Egilsstaðamorðmálinu fara nú fram við Héraðsdóm Reykjavíkur 27. maí 2014 11:37 Hundurinn gæti hafa slett blóðinu Mörgum álitaefnum hefur verið velt upp í vitnaleiðslum yfir matsmanni í Egilsstaðamorðmáinu í dag. 27. maí 2014 13:36 Gögn málsins sanna ekki morðið á Karli Tveir matsmenn, sem fengnir voru til að yfirfara gögn í Egilsstaðamorðmálinu svokallaða, eru sammála um öll atriði málsins. Þeir segja að gögn málsins ein og sér leiði ekki sekt Friðriks Brynjars Friðrikssonar, sem var dæmdur í fangelsi, í ljós. 28. maí 2014 00:01 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira
Lögregla notaði úreltar rannsóknaraðferðir Blóðrannsóknir á baðvaski morðvettvangsins hefðu þurft að vera mun ítarlegri. 27. maí 2014 15:08
Hundrað stungur skildu ekki eftir sig blóðslettur Hvít peysa sem Friðrik Brynjar var í þegar morðið var framið var ekki blóðug. 27. maí 2014 12:17
Ekki vitað hvaðan morðvopnið er fengið Vitnaleiðslur í Egilsstaðamorðmálinu fara nú fram við Héraðsdóm Reykjavíkur 27. maí 2014 11:37
Hundurinn gæti hafa slett blóðinu Mörgum álitaefnum hefur verið velt upp í vitnaleiðslum yfir matsmanni í Egilsstaðamorðmáinu í dag. 27. maí 2014 13:36
Gögn málsins sanna ekki morðið á Karli Tveir matsmenn, sem fengnir voru til að yfirfara gögn í Egilsstaðamorðmálinu svokallaða, eru sammála um öll atriði málsins. Þeir segja að gögn málsins ein og sér leiði ekki sekt Friðriks Brynjars Friðrikssonar, sem var dæmdur í fangelsi, í ljós. 28. maí 2014 00:01