Ríkið borgar hluta af sneiðmyndatæki Vesturlendinga Kjartan Atli Kjartansson skrifar 5. nóvember 2014 17:50 Nýja tækið á að nota á HVE á Akranesi. Vísir/GVA
Ríkið mun borga hluta af þeim fjörutíu milljónum sem nýtt sneiðmyndatæki kostar og á að nota í Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Akranesi. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa Hollvinasamtaka HVE og heilbrgiðisráðherra sem fór fram í dag. Í fréttatilkynningu frá Hollvinasamtökum HVE segir: „Hollvinasamtökin eru komin vel áleiðis með að fjármagna kaup á nýju sneiðmyndatæki, en herslumuninn vantar þó enn til að allt gangi upp. áfangi í fjármögnun tækisins felst hins vegar í afar jákvæðum og ánægjulegum viðbrögðum heilbrigðisráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, sem á fundi með fulltrúum hollvinasamtakanna staðfesti að ráðuneytið mun styðja við endurnýjun tækisins með því að tryggja fjármögnun hluta kaupanna og eru Hollvinasamtökin þakklát fyrir stuðninginn og góðan skilning á mikilvægi tækisins fyrir íbúa á Vesturlandi.“ Tækið sem var til á stofnuninni var orðið sjö ára gamalt og hrundi á endanum á föstudaginn. Sagt var frá málinu á heimasíðu HVE í fyrradag. Þar kemur fram að 1700 rannsóknir hafi verið gerðar í tækinu á þessu ári. Vísir fjallaði ítarlega um málið í gær og var meðal annars rætt við Steinunni Sigurðardóttur, sem er formaður hollvinasamtakanna. Hún sagði við Vísi í gær: „Söfnunin fyrir nýju tæki er rúmlega hálfnuð. Tækið kostar um fjörutíu milljónir, þannig að það er stórt verkefni að safna fyrir svona tæki á þessu svæði. En þetta mál vekur upp ýmsar siðferðislegar spurningar. Tækið sem hrundi núna var gjöf frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu. Maður spyr sig hvort að sá sem rekur stofnunina – ríkisvaldið – eigi ekki að sjá um viðhald og endurnýjun á tækjum sem eru gefin að gjöf?“ Steinunn upplýsti lesendur Vísis um að búið væri að safna fyrir rúmlega helmingi uppsetts verðs á nýju sneiðmyndatæki auk þess sem hún sagði frá fundinum sem var í dag: „Það er reyndar tilviljun að fundurinn sé svona stuttu eftir að tækið hrundi. Við vorum búin að ræða við ráðherra fyrr á árinu og biðja um fundinn. Í apríl óskuðum við eftir því að ríkið kæmi með okkur í þetta og erum spennt að sjá hver viðbrögðin verða á morgun [í dag].“ Þrátt fyrir að ríkið ætli að koma til móts við Vesturlendinga stendur söfnunin ennþá yfir og því ljóst að ríkið mun ekki borga allt það sem eftir stendur. Í fréttatilkynningunni segir ennfremur: „Hollvinasamtökunum er því fátt að vanbúnaði til að panta nýtt sneiðmyndatæki í samráði við HVE. Sem fyrr er nefnt vantar nú aðeins herslumuninn til þess að unnt verði að panta nýja tækið. Hollvinasamtökin eru sannfærð um að félagasamtök, íbúar og fyrirtæki muni nú taka höndum saman fyrir þennan lokaáfanga söfnunar. Söfnunarreikningur Hollvinasamtakanna er: 0326-22-000834 og kennitala: 510214-0560. Einnig er minnt á heimasíðu hollvinasamtakanna vesturlandsvaktin.is þar sem áhugasamir aðilar geta skráð sig í samtökin.“
Tengdar fréttir Ónýtt sneiðmyndatæki tekið úr notkun Síðastliðinn föstudag var tölvusneiðmyndatæki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi tekið úr notkun. 3. nóvember 2014 23:03 Þurfa að safna fyrir sneiðmyndatæki í annað sinn „En þetta mál vekur upp ýmsar siðferðislegar spurningar. Tækið sem hrundi núna var gjöf frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu. Maður spyr sig hvort að sá sem rekur stofnunina – ríkisvaldið – eigi ekki að sjá um viðhald og endurnýjun á tækjum sem eru gefin að gjöf?“ 4. nóvember 2014 12:03 Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Sjá meira
Ónýtt sneiðmyndatæki tekið úr notkun Síðastliðinn föstudag var tölvusneiðmyndatæki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi tekið úr notkun. 3. nóvember 2014 23:03
Þurfa að safna fyrir sneiðmyndatæki í annað sinn „En þetta mál vekur upp ýmsar siðferðislegar spurningar. Tækið sem hrundi núna var gjöf frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu. Maður spyr sig hvort að sá sem rekur stofnunina – ríkisvaldið – eigi ekki að sjá um viðhald og endurnýjun á tækjum sem eru gefin að gjöf?“ 4. nóvember 2014 12:03