Þurfa að safna fyrir sneiðmyndatæki í annað sinn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. nóvember 2014 12:03 Nýja tækið á að nota á HVE á Akranesi.
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) hafa undanfarna mánuði staðið fyrir söfnun á nýju sneiðmyndatæki, sem hugsað er til notkunar í útibúi stofnunarinnar á Akranesi. Tækið sem var til á stofnuninni var orðið sjö ára gamalt og hrundi á endanum á föstudaginn.Sagt var frá málinu á heimasíðu HVE í gær. Þar kemur fram að 1700 rannsóknir hafi verið gerðar í tækinu á þessu ári. Nú er því ekkert sneiðmyndatæki á HVE og segir Steinunn Sigurðardóttir, formaður hollvinasamtakanna, að oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn. „Söfnunin fyrir nýju tæki er rúmlega hálfnuð. Tækið kostar um fjörutíu milljónir, þannig að það er stórt verkefni að safna fyrir svona tæki á þessu svæði. En þetta mál vekur upp ýmsar siðferðislegar spurningar. Tækið sem hrundi núna var gjöf frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu. Maður spyr sig hvort að sá sem rekur stofnunina – ríkisvaldið – eigi ekki að sjá um viðhald og endurnýjun á tækjum sem eru gefin að gjöf?“ spyr Steinunn.Funda með heilbrigðisráðherra á morgun Hollvinasamtök HVE eiga fund með Kristjáni Þór Júlíussyni á morgun þar sem rætt verður um aðkomu ríkissins að kaupum á tækinu. „Það er reyndar tilviljun að fundurinn sé svona stuttu eftir að tækið hrundi. Við vorum búin að ræða við ráðherra fyrr á árinu og biðja um fundinn. Í apríl óskuðum við eftir því að ríkið kæmi með okkur í þetta og erum spennt að sjá hver viðbrögðin verða á morgun.“ Steinunn segir að í síðustu viku hafi bréf verið sent á 185 stór og smá fyrirtæki á vesturlandi. „Ég heyri á þeim sem ég hef rætt við hjá mörgum fyrirtækjum að þeir séu þeirrar skoðunar að ríkið eigi að kaupa tækið.“ Hún segir að félagasamtök á borð við Lionsklúbba, Kiwanisklúbba og kvenfélög hafi verið afar dugleg að safna fyrir sneiðmyndatækinu dýra. „Það skiptir okkur máli að hafa sneiðmyndatæki hér. Það eru sneiðmyndatæki í öllum landshlutum, þannig að ef ekkert tæki kemur í staðinn fyrir þetta verður þetta eini landshlutinn þar sem ekkert sneiðmyndatæki er til á.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira