Lífið

Hannaði á morðóðan mafíósa

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Svava Magdalena Arnarsdóttir hannaði á siðblindan mafíósa í lokaverkefni sínu í fatahönnun við LHÍ.
Svava Magdalena Arnarsdóttir hannaði á siðblindan mafíósa í lokaverkefni sínu í fatahönnun við LHÍ. Mynd/daníel
Ég er svolítið elegant og pönkuð týpa sjálf svo það má segja að línan sé lýsandi fyrir minn eigin stíl. Ég gæti vel séð sjálfa mig í þessum fötum. Ég á hins vegar ekkert sameiginlegt með karakternum, ég er ekki svona ill,“ segir Svava Magdalena Arnarsdóttir hlæjandi þegar hún er spurð út í útskriftarlínu sína í fatahönnun frá LHÍ en Svava hannaði fatnað á siðblint mafíósakvendi.

„Ég bý alltaf til ímyndaðan heim og karakter til að byggja á við hönnunarvinnuna. Fyrir lokaverkefnið bjó ég til móður á fertugsaldri í Brasilíu, sem starfar í leyni sem mafíuforingi. Hún heldur úti liði manna sem vinna skítverkin fyrir hana og er moldrík. Hún þykist vera annað en hún er og byggir kirkjur og heimili fyrir munaðarleysingja og heldur stórar veislur í villunni sinni. En ef henni mislíkar eitthvað fækkar gestunum. Hún er siðblind fyrir allan peninginn,“ útskýrir Svava og segir hönnunarferlið hafa verið þrælskemmtilegt.

„Ferlið var mjög spennandi og þótt auðvitað sé alltaf mikil pressa í lokaskilum þá er það góð pressa. Ég byrjaði ung að sauma föt og stefndi alltaf á fatahönnunina en kláraði kjólaklæðskurð áður en ég hóf hönnunarnámið,“ segir Svava.

En hvernig föt kýs siðblint mafíósakvendi?

„Hún kýs fáguð og falleg föt úr gæðaefnum. Ég notaði reimar í línuna sem tilvísun í krufningar, þar sem hún drepur til að afla sér fjár,“ segir Svava sposk.

Eftir annasamar síðustu vikur fyrir útskrift segir Svava sumarið óráðið. Í vetur dreymir hana um að komast út fyrir landsteinana.

„Það væri gaman að fá einhverja vinnu úti eða fara sem lærlingur eitthvert. Bara prófa eitthvað nýtt og sjá hvað heimurinn hefur upp á að bjóða.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.