Vekja vitund á stöðu unglingsstúlkna Samúel Karl Ólason skrifar 3. október 2014 11:04 Vísir/Getty/Pjetur
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mun ganga með vatnsfötu á höfðinu í dag. Það gerir hún til stuðnings kynningarvikunni Sterkar stelpur – sterk samfélög, sem frjáls félagasamtök og Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Um er að ræða vitundarvakningu á stöðu unglingsstúlkna í fátækustu löndum heims og mun kynningarvikan standa yfir alla næstu viku, eða 6. – 11. október. Vikunni verður formlega ýtt úr vör á Austurvelli í dag með vatnsfötuáskorun klukkan þrjú. Ganga þarf með tíu lítra fötu að minnsta kosti tíu metra til stuðnings unglingsstúlkum í þróunarríkjunum. Í tilkynningu frá UN Women á Íslandi segir að Vigdís muni ganga fyrsta spölinn með vatnsfötu á höfðinu að hætti afrískra stúlkna. „Hún skorar á þrjá aðra að gera slíkt hið sama innan sólarhrings og birta myndbönd eða ljósmynd af því til staðfestingar á samfélagsmiðlum,“ segir í tilkynningunni.Stúlkur lykilatriði Þá segir að rannsóknir síðustu ára sýni að unglingsstúlkan sé einn höfuðlykill þess að uppræta fátækt í heiminum. Þrátt fyrir það sé staða unglingsstúlkna víða skelfileg. „Sláandi misrétti, nauðungarhjónabönd, ofbeldi og valdleysi. Þær verða fyrir mannréttindabrotum og mismunun vegna kyns og aldurs.“ Átakið felur þar að auki í sér hvatningu til allra stúlkna um að standa á rétti sínum og láta rödd sína heyrast hátt og snjallt. „Á hverjum degi upplifa milljónir stúlkna að raddir þeirra séu kæfðar, lífi þeirra ógnað, réttindi þeirra fótum troðin, frelsi þeirra takmarkað - einungis vegna þess að þær eru stelpur. Með kynningarátakinu Sterkar stelpur - sterk samfélög viljum við að íslenska þjóðin sendi stúlkum sem búa við brot á mannréttindum skilaboð um að þær standi ekki einar: að saman getum við breytt heiminum og gert hann betri. Komum heiminum í lag!“
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Fleiri fréttir Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Bein útsending: Kynna nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Sjá meira