Milljarður aukalega í Landspítalann og 400 milljónir í húsaleigubætur Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. nóvember 2014 17:55
Ákveðið hefur verið að veita sérstök framlög til rekstrar og stofnkostnaðar heilbrigðisstofnana um 2.125 milljónir króna. Langmest, eða milljarður, fer til Landspítalans. 400 milljónum verður einnig varið aukalega til húsaleigubóta til að koma til móts við tekjulægstu leigjendur á húsnæðismarkaði. Þetta er meðal breytinga á fjárlagafrumvarpi næsta árs sem kynntar voru í fjárlaganefnd í dag. Breytingarnar hafa verið birtar á vef fjármálaráðuneytisins en þar kemur fram að 875 milljónum króna verði varið í hönnun meðferðakjarna nýs Landspítala. Auk þess hefur verið ákveðið að veita 100 milljónum króna til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Breytingarnar fela einnig í sér minni þátttöku einstaklinga í lyfjakostnaði um 5 prósent með 150 milljóna króna aukinni greiðsluþátttöku ríkisins. Þá verða framlög til menntamála aukin um 767 milljónir króna. Þar fer stærstur hluti til háskóla, eða 617 milljónir króna. Vinnustaðanámssjóður fær einnig 150 milljónir króna og framlagið gert varanlegt. Til viðbótar verða framlög til sóknaráætlana landshluta, vegaframkvæmda, íþróttamála, Landhelgisgæslunnar, VIRK, lýðheilsu og brothættra byggða aukin. Ástæðan fyrir því að hægt er að verja auknu fé í þessi verkefni er svigrúm sem myndast hefur vegna batnandi afkomu ríkissjóðs og bjartari þjóðhagsspár, samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins. Þessi verkefni eru samkvæmt tilkynningunni sérstök áherslumál ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira