„Ég vil að við losum okkur við þá sadista sem eru í kennarastéttinni“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2014 11:08 VÍSIR/valli „
Ég blandaði mér inn í þessi mál þegar þau voru komin alveg á suðupunkt,“ Stefán Karl Stefánsson fyrrverandi formaður Regnbogabarna, sem ræddi um einelti og þá umræðu sem hefur verið um einelti af völdum kennara í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Grunnskólakennarinn í Grindavík sem hefur að undanförnu verið sakaður um að leggja tiltekna nemendur sína í einelti er farinn í veikindafrí en Vísir hefur fjallað ítarlega um málið að undanförnu. „Ég setti mig í samband við foreldra þessara þriggja barna sem um ræðir og hef kynnt mér þeirra mál mjög vel með því að lesa skýrslur. Ég blanda mér ekki í svona mál án þess að þekkja báðar hliðar,“ segir Stefán og bendir einnig á að kennarar hafi alltaf andmælarétt þegar svona mál koma upp. „Umræddur kennari hafði fengið þennan andmælarétt og lágu fyrir viðtöl við báða einstaklinga og því miður er engum blöðum um það að fletta að þarna er um einelti að ræða, það er ekki spurning. Ég lít ekki á mig sem einhvern sérfræðing í svona málum og er það ekki, ég er einfaldlega að stíga fram og passa það að réttur barna sé virtur,“ segir Stefán og bendir á að það hafi rignt yfir hann bréfum frá kennurum sem eru mjög ósáttir við það að það sé verið að saka kennara um einelti.Eineltið hefur verið staðfest „Við skulum átta okkur á því að hér er ekkert verið að saka neinn um einelti, það er verið að tala um það að búið sé að staðfesta að um einelti sé að ræða af sérfræðingum. Á þeim forsendum verður fólk brjálað að skólastjórinn skuli ekki víkja kennaranum tímabundið frá störfum á meðan málið sé rannsakað enn frekar.“ Stefán bendir því næst á að lögreglumanni hafi á dögunum verið vikið tímabundið frá starfi á meðan rannsókn á hans máli hafi staðið yfir. Hann segir að eineltisáætlanir skólanna séu mjög skýrar. „Hér á landi eru barnaverndarlög og við höfum einnig barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Við eigum að hlusta á börnin. Í lögum segir mjög skýrt að barn skuli alltaf njóta vafans. Viðkomandi kennari, hvort sem hann er sekur eða saklaus í málinu, verður að víkja tímabundið. Málin eru síðan alltaf rannsökuð ítarlega.“ Stefán segir að eineltisáætlanir í skólunum séu til þess að hægt sé að ræða við alla aðila málsins og komast að einhverri niðurstöðu. Hann segir að réttindi kennara í svona málum séu þau að þeir þurfi ávallt að víkja. „Kennarinn er þá á hálfum launum. Ef það reynist síðan rangt að um einelti sé að ræða þá kemur kennarinn aftur til starfa og fær hinn helming launa sinna aftur til baka.“Fær oft gömul mál í hendurnar Stefán segir að hann fái oft mál í hendurnar sem séu orðin tveggja til fjögurra ára gömul. „Þá er fólk búið að berjast og berjast í kerfinu og lemja á allar dyr, það þarf að samræma áætlanir mun meira. Við erum bara búin að kerfisvæða skólakerfið svo mikið að það skilur eiginlega enginn upp né niður í einu eða neinu. Stefán segist ekki hafa rætt við umræddan kennara í Grindavík, skólastjórann í skólanum né bæjarstjóranum í Grindavík. „Þetta fólk hefur ekki viljað tjáð sig og það er kannski erfitt fyrir fólk að tjá sig um einstaka mál. Ég vil bara hvetja kennarastéttina og almennt þá sem starfa í skólum á Íslandi að stíga aðeins fram og ræða málin. Við þurfum ekkert að ræða einstaka mál, við þurfum bara að ræða almennt hvað við eigum að gera til þess að laga þessi mál.“ Stefán segir samt sem áður að heilmikið hafi áunnist í málefnum eineltis í skólunum. „Flest börn eru í góðum málum en við verðum samt að laga þessi mál og ég hvet fólk til að stíga fram og ræða þetta.“ Hann segir að kennarastéttin sé best varða stéttin samkvæmt lögum. „Ég þekki enga stétt sem er jafn vel varin. Ef maður les í gegnum lögin þá er gríðarlega erfitt að víkja kennara frá störfum. Það þarf raunverulega að enda með dómi í héraðsdómi. Menn hafa endalausan rétt til þess að andmæla og þar er auðvitað frábært fyrir kennara.“Erfitt að víkja kennurum Aðspurður hvort Stefán hafi heyrt um dæmi þar sem skólastjóri hefði verið í vandræðum með að víkja kennara úr starfi svaraði hann því játandi. „Ég hef heyrt af slíkum dæmum og mjög mikið um það. Það sýnir sig í því að það er verið að færa kennara á milli innan skólans eða færa þá yfir í aðra skóla. Ef þú ert óhæfur til þess að kenna börnum þá áttu ekki að vera kenna börnum.“ Stefán segir að það eigi að víkja kennara úr starfi ef það er einhver vafi hvort hann sé hæfur til að kenna börnum. „Það á að taka af þér kennararéttindin og víkja þér, það er enginn spurning. Ég er hér til þess að vernda börnin og þau eiga alltaf að njóta vafans. Ég skal bara segja það beint út, ég vil að við losum okkur við þá sadista sem eru í kennarastéttinni.“ Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Tengdar fréttir Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð. 4. apríl 2014 19:03 „Mér finnst þetta bara ótrúlega sorglegt mál" Eggjum var kastað í tvö hús í Grindavík í nótt, að því er virðist í tengslum við umdeilt mál í bænum, þar sem grunnskólakennari er sakaður um að leggja börn í einelti. Móðir eins barnanna kveðst vilja að þau geti farið óhrædd í skólann. 22. apríl 2014 20:00 Hagur barns er hagur samfélagsins Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur sem rufu þögnina og sögðu frá einelti kennara þurfa nú að sæta ofsóknum frá bæjarbúum. 23. apríl 2014 07:00 „Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig“ Brynhildur Ólafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir skólagöngu sína í Grunnaskóla Grindavíkur en hún segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í bæjarfélaginu í pistli sínum. 21. apríl 2014 10:04 „Áhrif eineltisins á andlega heilsu barna okkar eru gríðarleg“ Foreldrar barna sem hafa sætt einelti og annarri ámælisverðri hegðun af hálfu kennara sem starfar í Grunnskóla Grindavíkur hafa sent frá sér nokkrar athugasemdir vegna þeirrar meðferðar sem málið hefur hlotið. 21. apríl 2014 14:51 Segir ríg á milli ríkra og fátækra í Grindavík „Þetta er stéttaskipting eins og hún gerist íslenskust, ef svo má að orði komast,“ segir Stefán Karl Stefánsson. 22. apríl 2014 10:57 Einelti í Grindavík: Skólastjórinn leitar sátta „Ég held stundum að skólastjórinn sé að reyna að snúa dæminu við, eins og ég og barnið mitt höfum gert eitthvað af okkur en ekki kennarinn.“ 11. apríl 2014 14:23 „Þú ert leiðinleg, ljót og þykist vera manneskja sem er lögð í einelti“ Helga Guðný Þorgeirsdóttir segir sögu sína um einelti sem hún verður fyrir í Grindavík. 23. apríl 2014 23:55 Kennarinn sem er sakaður um að leggja í einelti: "Mannorð mitt hefur verið sundurtætt“ Grunnskólakennarinn í Grindavík sem sakaður hefur verið um að leggja nemendur sína í einelti er farinn í veikindafrí út skólaárið. "Börnin ykkar hafa ekki farið varhluta af þeim málum sem ég hef verið að stríða við undanfarna mánuði." 26. apríl 2014 16:53 Eggjum kastað í hús eineltisfórnarlambs í Grindavík Uppnám er í Grindavík í kjölfar umræðu um einelti af hendi grunnskólakennara í bænum. 22. apríl 2014 09:29 Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Sjá meira
Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð. 4. apríl 2014 19:03
„Mér finnst þetta bara ótrúlega sorglegt mál" Eggjum var kastað í tvö hús í Grindavík í nótt, að því er virðist í tengslum við umdeilt mál í bænum, þar sem grunnskólakennari er sakaður um að leggja börn í einelti. Móðir eins barnanna kveðst vilja að þau geti farið óhrædd í skólann. 22. apríl 2014 20:00
Hagur barns er hagur samfélagsins Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur sem rufu þögnina og sögðu frá einelti kennara þurfa nú að sæta ofsóknum frá bæjarbúum. 23. apríl 2014 07:00
„Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig“ Brynhildur Ólafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir skólagöngu sína í Grunnaskóla Grindavíkur en hún segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í bæjarfélaginu í pistli sínum. 21. apríl 2014 10:04
„Áhrif eineltisins á andlega heilsu barna okkar eru gríðarleg“ Foreldrar barna sem hafa sætt einelti og annarri ámælisverðri hegðun af hálfu kennara sem starfar í Grunnskóla Grindavíkur hafa sent frá sér nokkrar athugasemdir vegna þeirrar meðferðar sem málið hefur hlotið. 21. apríl 2014 14:51
Segir ríg á milli ríkra og fátækra í Grindavík „Þetta er stéttaskipting eins og hún gerist íslenskust, ef svo má að orði komast,“ segir Stefán Karl Stefánsson. 22. apríl 2014 10:57
Einelti í Grindavík: Skólastjórinn leitar sátta „Ég held stundum að skólastjórinn sé að reyna að snúa dæminu við, eins og ég og barnið mitt höfum gert eitthvað af okkur en ekki kennarinn.“ 11. apríl 2014 14:23
„Þú ert leiðinleg, ljót og þykist vera manneskja sem er lögð í einelti“ Helga Guðný Þorgeirsdóttir segir sögu sína um einelti sem hún verður fyrir í Grindavík. 23. apríl 2014 23:55
Kennarinn sem er sakaður um að leggja í einelti: "Mannorð mitt hefur verið sundurtætt“ Grunnskólakennarinn í Grindavík sem sakaður hefur verið um að leggja nemendur sína í einelti er farinn í veikindafrí út skólaárið. "Börnin ykkar hafa ekki farið varhluta af þeim málum sem ég hef verið að stríða við undanfarna mánuði." 26. apríl 2014 16:53
Eggjum kastað í hús eineltisfórnarlambs í Grindavík Uppnám er í Grindavík í kjölfar umræðu um einelti af hendi grunnskólakennara í bænum. 22. apríl 2014 09:29