Ströng löggjöf skilar árangri Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 4. október 2014 08:00 Áfengisneysla íslenskra unglinga hefur minnkað og er það rakið til þess að á Íslandi er ströng áfengislöggjöf. NORDICPHOTOS/AFP
Unglingar drekka mest í löndum þar sem fullorðnir drekka mikið. Þetta er niðurstaða rannsóknar danskra vísindamanna sem skoðað hafa gögn úr könnunum frá 2010 með svörum um 140 þúsunda unglinga í 37 löndum Evrópu og Norður-Ameríku við spurningum um áfengisdrykkju. Ísland er meðal þeirra landa þar sem fæstir 15 ára unglingar hafa drukkið sig ölvaða einu sinni, eða 27 prósent. Hér var drykkja fullorðinna 6,3 lítrar af áfengi á ári, að því er segir í frétt á vef Jótlandspóstsins þar sem vitnað er í grein í ritinu Addiction. „Við höfum í raun notið ávaxta af strangri áfengislöggjöf sem skilar sér í þessu,“ segir Ársæll Arnarsson, prófessor í sálfræði við Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri. Hann segir könnunina sem dönsku vísindamennirnir skoðuðu gögn úr vera gerða á fjögurra ára fresti. „Hér gengur hún undir heitinu Heilsa og lífskjör skólabarna og Rannsóknasetur forvarna sér um fyrirlagninguna. Á Íslandi taka allir í sjötta, áttunda og tíunda bekk grunnskólanna þátt, eða alls 12 þúsund börn og unglingar.“ Að sögn Ársæls, sem er einn stjórnenda könnunarinnar hér, benda niðurstöðurnar hér á landi í ár til þess að áfengisneysla íslenskra unglinga hafi minnkað enn meira miðað við árið 2010. „Það eru margir þættir sem koma að því, eins og til dæmis almennt breytt hugarfar gagnvart áfengisneyslu unglinga. Þetta er ekki samþykkt lengur.“ Áhrif félagslegrar stöðu foreldra á drykkju unglinga er hvergi meiri en á Íslandi, að því er Ársæll bendir á. „Það eru miklu meiri líkur á að krakkar sem eiga foreldra sem eru í erfiðri félagslegri stöðu hafi drukkið sig ölvaða en aðrir krakkar. Við sjáum hvergi sambærileg áhrif af þessu.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira