Einar Ben var meðal sterkustu skákmanna landsins Jakob Bjarnar skrifar 31. október 2014 15:15 Hrafn Jökulsson og Einar Ben eiga sameiginlegan óbilandi áhuga á ljóðum og skák.
Laugardaginn 1. nóvember klukkan 14 mun Einar Benediktson sendiherra leika fyrsta leikinn á Afmælismóti Einars Benediktssonar skálds á veitingastaðnum Einari Ben við Ingólfstorg. Þjóðskáldið var í hópi sterkustu skákmanna Íslands um aldamótin 1900, að mati Hrafns Jökulssonar forseta Hróksins, sem stendur að mótinu ásamt Taflfélagi Reykjavíkur. Margir sterkustu skákmenn Íslands taka þátt í Afmælismóti Einars Benediktssonar, meðal annarra Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, sem verður áttræður í janúar. Hrafn, sem sjálfur er rithöfundur, ljóðskáld og svo þjóðþekktur áhugamaður um skáklistina, segir fara vel á því að skákmenn minnist Einars Benediktssonar. „Einar var meðal stofnenda Taflfélags Reykjavíkur um aldamótin 1900. Hann tók líka þátt í fyrsta opinbera skákviðburðinum á Íslandi, sem sögur fara af, þegar hann tefldi á þjóðhátíð í Reykjavík 1901 með lifandi taflmönnum í sérhönnuðum búningum. Mótherji hans var Pétur Zóphóníasson, langsterkasti skákmaður Íslands um það leyti. Þetta var mikil og skemmtileg uppákoma í bæjarlífinu í Reykjavík, og „lifandi skák“ varð í kjölfarið vinsæl á meiriháttar hátíðum vítt og breitt um landið.“Tefldi við þá bestu á Íslandi Hrafn segir að í endurminningum Valgerðar Benediktsson, eiginkonu Einars, komi vel fram að skákin hafi skipað stóran sess í lífi Einars. Valgerður segir: ,,Ein mesta skemmtun Einars var að tefla skák við kunningja sína, og gerði hann það oft í tómstundum sínum. Hann sagði mér, að hann hefði teflt við Sigurð Jónsson fangavörð og Pétur Pétursson, föður dr. Helga Pjeturss, en þessir menn munu hafa verið taldir mjög góðir skákmenn á sinni tíð. Síðar tefldi hann við hina yngri menn eins og Pétur Zóphóníasson og Eggert Gilfer. Einnig tefldi hann oft við bræðurna Sturlu og Friðrik Jónssyni, sem komu oft á heimili okkar.“ Hér eru nefndir margir af bestu skákmönnum Íslands á sínum tíma, svo Einar hefur ekki setið að tafli gegn aukvisum. „Einar var greinilega nógu góður til að tefla að staðaldri við þá bestu á Íslandi. Við vitum ekki úrslit í smáatriðum, en menn þurfa ekki að gjörþekkja Einar Benediktsson til að vita, að hann hefði ekki teflt af ástríðu árum saman við sterka skákmenn nema úrslitin hefðu verið honum samboðin. Einar Benediktsson var greinilega góður liðsmaður Caissu, skákgyðjunnar.“Tafl fyrir glöggeygan gest Og Hrafn heldur áfram að nefna hrafl úr fyrirhugaðri dagskrá: Við setningu afmælismótsins á laugardag mun Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flytja afmælisræðu, og síðan mun Einar Benediktsson sendiherra og sonarsonur skáldsins leika fyrsta leikinn á mótinu sem haldið er til að heiðra minningu afa hans. Hrafn segir að keppendalistinn sé glæsilegur og hvetur fólk til að við á Einari Ben á morgun milli 14 og 16: „Það er alltaf hátíð þegar goðsögnin Friðrik Ólafsson sest við skákborðið. Og þarna verða líka þrír af fjórmenningunum sem skipuðu besta landslið sem Ísland hefur átt: Jóhann Hjarrtarson, Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason, og fleiri snjallir stórmeistarar. Þarna fá sum af okkar bestu og efnilegustu börnum og ungmennum tækifæri, eldri skákmenn tefla fram vaskri sveit og skákdrottningarnar Lenka Ptacnikova og Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir eiga eftir að veita marga skráveifu.“ Einar Benediktsson notar iðulega líkingar úr skák, til dæmis í hinum magnaða bálki Væringjar:Vort heimslíf er tafl fyrir glöggeygan gest þar sem gæfan er ráðin ef leikurinn sést.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Fleiri fréttir Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Sjá meira