Mistök við myndræna framsetningu Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. október 2014 07:00 Fylgi flokka samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var 21. og 22. október.
Þau leiðu mistök voru gerð við myndræna framsetningu á frétt um fylgi stjórnmálaflokkanna á forsíðu Fréttablaðsins í dag að súlur í súluritinu passa ekki við fylgistölur. Áréttað skal að tölurnar eru í samræmi við niðurstöður skoðanakönnunarinnar en hæðir súlnanna eru rangar. Beðist er velvirðingar á mistökunum sem urðu, en þau uppgötvuðust ekki fyrr en eftir að blaðið var farið í prentun. Á myndinni sem fylgir þessari frétt eru súlur í súluritinu í samræmi við niðurstöður skoðanakönnunarinnar. Súlurit á mynd á rafrænni útgáfu Fréttablaðsins, sem finna má hér á Vísi er einnig rétt. Hér að neðan fylgir svo fréttin:Framsókn tapar þrettán mönnumFramsóknarflokkurinn fær 8,7 prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var dagana 21. og 22. október.Yrði þetta niðurstaða kosninganna fengi flokkurinn sex þingmenn kjörna en hann fékk kjörna nítján þingmenn í síðustu kosningum.Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn á Alþingi miðað við þessar niðurstöður. Hann er með 30,3 prósent fylgi og fengi tuttugu þingmenn kjörna, en Samfylkingin er næststærst með 23,1 prósent fylgi.Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir að þetta sé lélegasta mæling sem Framsóknarflokkurinn hafi fengið frá kosningum. Hugsanlega sé komin óþreyja í menn að fá skuldaleiðréttingarnar upp úr hattinum og því sé ekki að neita að umræðan um skuldaleiðréttinguna hafi verið neikvæð. Sigrún Magnúsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flokkurinn hafi ákveðið að láta verk sín tala og dvelja ekki við skoðanakannanir.„Mér finnst ótrúlega margt hafa gerst og merki sjást um bættan þjóðarhag á mörgum sviðum. Hér er lítið atvinnuleysi og ekki verið meiri kaupmáttaraukning lengi, jafnvel kannski ekki í sögunni,“ segir Sigrún. Hún segir að hugsanlega hafi framsóknarmenn ekki náð að koma skilaboðum áleiðis um allt það jákvæða sem gert hefur verið að undanförnu.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira