„Samfylkingarfélagið í Reykjavík var auðvitað orðið stjórnlaust“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. október 2014 14:47
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, grunar að ákveðnir menn innan Samfylkingarinnar hafi verið farnir að undirbúa stjórnarskipti strax í nóvember 2008. Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Eyjunni á Stöð 2 í gær. Þar ræddi Geir meðal annars um atburðarásina sem leiddi til þess að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokk fór frá í lok janúar 2009. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnandi þáttarins, spurði Geir meðal annars út í ástandið í Samfylkingunni dagana áður en ríkisstjórnin fór frá. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var þá formaður flokksins en vegna erfiðra veikinda var hún mikið fjarverandi í janúar 2009. Samfylkingarfélagið í Reykjavík stóð meðal annars fyrir fjölmennum fundi í Þjóðleikhúskjallaranum til að ræða ríkisstjórnarsamstarfið og voru mikil mótmæli þar fyrir utan. „Samfylkingarfélagið í Reykjavík var auðvitað orðið stjórnlaust. Formaður flokksins var fjarverandi í janúar en hins vegar grunar mig að sumir menn í Samfylkingunni hafi verið byrjaðir að undirbúa stjórnarskipti strax í nóvember eða farnir að tala um það við einhverja í VG. Það er svona það nýjasta sem maður heyrir en það er nú rétt að þeir upplýsi það sjálfir við betra tækifæri,“ sagði Geir í gærkvöldi. Björn Ingi spurði hann þá hverjir það væru sem hefðu verið byrjaðir að undirbúa stjórnarskipti. „Einhverjir þarna sem hlupu í skarðið fyrir Ingibjörgu,“ svaraði Geir.Ertu að tala um Össur? „Ja, það gæti alveg verið hann, já.“Að Össur hafi verið byrjaður að undirbúa nýja ríkisstjórn í nóvember? „Mig grunar að þeir hafi verið byrjaðir að tala saman um þetta. Ég get alveg vel skilið að þeir í VG hafi verið gráðugir að koma í stjórn en mér fannst nú hitt svona heldur lakara að grafa undan stjórninni sem menn sátu, hvort sem það var nú Össur eða einhverjir aðrir. Hann var allavega framarlega í þessu þegar yfir lauk,“ sagði Geir. Umræður Geirs og Björns Inga má sjá hér að ofan frá mínútu 19:45.
Tengdar fréttir „Þetta mál er ömurlegt frá upphafi til enda og er þeim til skammar sem stóðu að því“ Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og verðandi sendiherra í Washington, var gestur í þættinum Eyjan á Stöð 2 í dag og talaði hann meðal annars um ávarp hans til þjóðarinnar 6. október árið 2008. 12. október 2014 21:00 Neyðarlán til Kaupþings var rétt ákvörðun Kemur ekki koma til greina að birta símtal sitt og seðlabankastjóra um lánveitinguna 12. október 2014 20:00 Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira
„Þetta mál er ömurlegt frá upphafi til enda og er þeim til skammar sem stóðu að því“ Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og verðandi sendiherra í Washington, var gestur í þættinum Eyjan á Stöð 2 í dag og talaði hann meðal annars um ávarp hans til þjóðarinnar 6. október árið 2008. 12. október 2014 21:00
Neyðarlán til Kaupþings var rétt ákvörðun Kemur ekki koma til greina að birta símtal sitt og seðlabankastjóra um lánveitinguna 12. október 2014 20:00