Segir Halldór hafa snúið fullkomlega við blaðinu Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2014 16:43 Höskuldur Þórhallsson. Vísir/Daníel „
Í fyrsta lagi furða ég mig á því að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga skuli gagnrýna að opinber störf séu staðsett út á landi. Það finnst mér mjög undarleg nálgun,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður Umhverfis- og samgöngunefndar. Höskuldur segir í samtali við Vísi að hann furðist mjög gagnrýni þeirra Halldórs Halldórssonar og Júlíus Vífils Ingólfssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á flutning Fiskistofu til Akureyrar. Þeir lögðu í morgun fram ályktunartillögu á fundi borgarstjórnar þar sem stjórnvöld eru hvött til að falla frá flutningi stofnunarinnar. „Í annan stað furða ég mig á því að maður sem talaði mjög lengi fyrir þeim halla sem er varðandi opinber störf út á landsbyggðinni, hafi algerlega snúið við blaðinu í þeim efnum.“ Þá bendir Höskuldur á að gagnrýni Halldórs og Júlíus Vífils beinist einnig að þeirra eigin flokki, þar sem þessi ákvörðun hafi verið tekin í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.Gegn eigin flokki Í tillögu Halldórs og Júlíusar segir að ákvörðunin um flutning stofnunarinnar sé dæmi um óundirbúin og óvandaðan flutning stonfunar. Varðandi það bendir Höskuldur á að eftir að ákvörðunin um flutning Fiskistofu hafi verið tekin, hafi verið heiðarlegt af stjórnvöldum að stíga fram og segja strax frá áætlunum sínum. „Það eru vönduð vinnubrögð. Það hefði verið óvandað ef það hefði verið pukrast með tilfærsluna eftir að ákvörðunin lá fyrir. Þetta var lang heiðarlegast í stöðunni,“ segir Höskuldur. Ályktunartillaga Halldórs og Júlíusar kemur einnig inn á stofnun nýrrar húsnæðismálastofnunar og segja þeir hana ekki eiga erindi út á land. Mest þörf slíkrar stofnuna sé í Reykjavík. „Jafnvel sveitarstjórnarmenn í Reykjavík hljóta að átta sig á því að nýjar stofnanir, eins og Húsnæðismálastofnunin sem að til stendur að setja á laggirnar, geta vel þjónað hlutverki sínu með góðum hætti þó þær séu ekki staddar í Reykjavík, eins og lang flestar aðrar stofnanir landsins,“ segir Höskuldur. Hann telur fjölda stofnana úti á landi líklega mega telja á fingrum beggja handa. „Þeim fækkar stöðugt þeim opinberu störfum sem þar er að finna. Þegar menn reyna að spyrna við hljóta jafnvel fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur að átta sig á því.“
Tengdar fréttir Vilja að fallið verði frá flutningi Fiskistofu Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja ákvörðunina um flutning Fiskistofu vera dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. 2. október 2014 14:28 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira
Vilja að fallið verði frá flutningi Fiskistofu Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja ákvörðunina um flutning Fiskistofu vera dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. 2. október 2014 14:28