Utanríkisráðherra mótmælti hernaði Ísraelsmanna á Gaza Heimir Már Pétursson skrifar 4. október 2014 19:30
Himinn og haf er milli utanríkisstefnu Íslands gagnvart Palestínu annars vegar og stefnu stjórnvalda í Ísrael hins vegar, að sögn utanríkisráðherra sem fundaði með ísraelskum starfsbróður sínum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði hersetu og mannréttindabrot ísraelskra stjórnvalda í Palestínu dæmi um virðingarleysi fyrir alþjóðalögum í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á mánudag . Tilgangslaust stríð á Gaza síðastliðið sumar hefði kostað fjölda mannslífa. Hann fordæmdi eldflaugaárásir Hamas á Ísrael og valdbeitingu Ísraelshers og sagði að hernámi Ísraela í Palestínu yrði að ljúka. Lausn vandans fælist í tveggja ríkja lausninni með víðtækum stuðningi grannríkjanna og öflugu friðargæsluliði. Gunnar Bragi átti síðan fund með Avigdor Lieberman utanríkisráðherra Ísraels á allsherjarþinginu í New York og segir fundinn hafa verið hreinskiptinn. „Við ræddum um málefni Gaza að sjálfsögðu og við lýstum yfir miklum vonbrigðum með hvernig Ísraelsmenn tóku á þessu vandamáli þar. Við komum því auðvitað líka á framfæri að við værum gagnrýnin á hvernig Hamas hefði haldið á sínum málum. En við bentum á að við myndum aldrei sætta okkur við að saklausir borgarar væru felldir eða strádrepnir með þeim hætti sem þarna gerðist,“ segir Gunnar Bragi. Utanríkisráðherra segist hafa ítrekað að Ísraelsmenn yrðu að fara fram með hófsömum hætti í samskiptum sínum við Palestínumenn. Lieberman er hins vegar í röðum mestu harðlínumanna í ísraelskum stjórnmálum og hefur verið talsmaður þess að engin miskun væri sýnd í hernaði gegn Palestínumönnum og hann vildi gjarnan leggja allt land Palestínumanna undir Ísrael.Ísraelsmenn svara gjarnan hörkulega fyrir sig. Var þér kannski vinsamlega bent á það að litla Ísland hefði lítið vit á þessum málum og ætti ekki að skipta sér af? „Við skulum segja að það séu himinn og haf á milli hugmynda okkar utanríkisráðherranna um það hvernig þetta mál er tilkomið og hvernig eigi að leysa það,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira