Fann 19 ára gamalt flöskuskeyti í Breiðafirði sem hann skrifaði sjálfur Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. október 2014 10:26 Hér má sjá flöskuskeytið gamla. „
Þetta er bara magnað, maður á varla til orð,“ segir Kristján Lár Gunnarsson, sjómaður sem búsettur er í Stykkishólmi, um nítján ára gamalt flöskuskeyti sem hann opnaði í gær. Kristján rak upp stór augu þegar hann sá að hann hafði sjálfur tekið þátt í því að skrifa það og setja í sjóinn árið 1995. Með öðrum orðum: Kristján fann sitt eigið nítján ára flöskuskeyti. „Skeytið var skrifað af nokkrum börnum sem voru saman með foreldrum sínum í eggjaferð í Bjarneyjum í Breiðaferði,“ útskýrir Kristján og vísar þar til ferðar sem var farin af fjölskyldum sem eiga hluta í Bjarneyjum, þar sem egg voru tínd. Í skeytinu er eggjaferðin svokallaða rifjuð upp og það skjalfest hversu mörg egg voru tínd. Kristján fann flöskuskeytið fyrr í sumar, þegar hann var að tína æðardún í innanverðum Breiðafirðinum. Hann sá reyndar nokkrar flöskur – sem allar fóru í dósapokann – en gerði sér grein fyrir að eitthvað sérstakt væri við þessa nítján ára gömlu appelsínflsöku. „Ég sá flöskuna og hugsaði með mér að þetta gæti verið flöskuskeyti, þannig að ég geymdi hana. En ég opnaði ekki flsökuna, setti hana bara upp í hillu í bílskúrnum mínum. Svo var ég að taka til í bílskúrnum í gær og ákvað að kíkja á skeytið. Og þá kannaðist ég eitthvað við þetta. Þetta er bara ótrúlegt. Hverjar eru líkurnar?“ spyr hann hlæjandi. Flöskuskeytið fór í sjóinn fyrir nítján árum. „Það eru um tólf kílómetrar frá þeim stað sem við settum það í sjóinn og þar sem ég fann það næstum tuttugu árum seinna. Guð má vita hversu langt það hefur ferðast langt og svo endað þarna.“ Krakkarnir sem voru með Kristjáni í eggjaferðinni svokölluðu eru flestir fluttir í burtu úr hólminum. „Já, en þeir sem voru með mér hafa séð þetta á Facebook núna. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt,“ segir hann. Kristján segir að flöskuskeytið – sem var skrifað á eldhúspappír – verði rammað inn. „Þetta fer upp á vegg í húsinu í Bjarneyjum, það er alveg klárt mál.“ Hér að neðan má sjá færslu Kristjáns um málið á Facebook. Post by Kristján Lár Gunnarsson.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Fleiri fréttir Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Sjá meira