Sýknaður af nauðgun: „Ertu kominn ástin mín?“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. ágúst 2014 16:51 Stúlkan segist hins vegar hafa verið sofandi og dreymt að maðurinn hennar væri kominn og hún hafi fundið fyrir einhverjum atlotum. Mynd/Úr safni
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað karlmann af ákæru um nauðgun að loknu balli nærri Blönduósi 5. október síðastliðinn. Taldi dómurinn ósannað að maðurinn hefði af ásetningi notfært sér ölvun og svefndrunga stúlkunnar sem sakaði hann um nauðgun. Einn dómaranna þriggja skilaði sératkvæði í málinu. Stúlkan var í för með þremur vinkonum sínum á leiðinni á dansleik. Bókuðu þær saman herbergi á gistiheimili, fóru í reiðtúr áður en skemmtanahald hófst seinna um daginn. Kom ákærði í heimsókn í herbergi stúlknanna fyrir ballið en hann sagðist sjálfur aldrei hafa hitt þær. Stúlkan sagði hann hins vegar hafa verið með í umræddum reiðtúr fyrr um daginn. Af framburði vitna má ráða að stúlkan hafi snúið aftur á gistiheimilið á milli klukkan 23 og 24 umrætt kvöld. Taldi hún sig vera orðna of drukkna og ætlaði að leggjast til hvílu. Starfsstúlka á gistiheimilinu opnaði fyrir henni og ræddi hún meðal annars við mann sinn, sem staddur var á Selfossi, áður en hinar stúlkurnar þrjár sneru aftur í herbergið. Þrjár stúlknanna lögðust fljótlega til hvílu á meðan sú þriðja yfirgaf herbergið. Þegar hún sneri aftur rúmum hálftíma síðar lagðist hún í rúmið en varð vör við hljóð sem kom frá rúmi brotaþola. Reis hún á fætur og sá ákærða, reif af honum sængina og rak hann á dyr.Vaknaði nakin að neðan „Kærði kvaðst hafa komið inn í herbergið, en þar hafi verið rökkur, og sest á rúmið hjá brotaþola og hann ekki séð betur en að hún væri vakandi. Þau hafi hvíslast eitthvað á og síðan strokið hvort öðru og kysst. Síðan hafi eitt leitt af öðru og þau haft samfarir af fúsum og frjálsum vilja og með samþykki beggja,“ segir í dómnum. Stúlkan segist hins vegar hafa verið sofandi og dreymt að maðurinn hennar væri kominn og hún hafi fundið fyrir einhverjum atlotum. „Hún bar að annaðhvort hafi hún sagt eitthvað á þá leið: „Ertu kominn ástin mín?“ eða þá að hana hafi dreymt að hún hefði sagt þetta. Hún kvaðst vita það eitt að hún hafi vaknað nakin að neðan með karlmann ofan á sér og hún viti að hún hafi ekki boðið honum upp í til sín og alls ekki í herbergi þar sem vinkonur hennar sváfu einnig,“ eins og segir í dómnum. Hún hafi svo vaknað við að vinkona hennar hafi rifið af henni sængina og þá hafi hún hrópað: „Ert þetta þú?“ Á þeim tíma hafi hún áttað sig á því hvað var að gerast.Heyrði kynlífsstunur Ákærði kvaðst fyrir dóminum ekki geta skýrt út í hvaða tilgangi hann fór inn í herbergið sem brotaþoli gisti í. Ein stúlknanna bar að hún hafi, eftir að hún var lögst til hvílu, heyrt einhvern koma inn í herbergið og karlmannsrödd segja: „Eruð þið ekki hressar stelpur, eruð þið ekki á leiðinni á ballið?“ og verður að telja afar líklegt að þar hafi ákærði verið á ferð eins og segir í dómnum. Ákærði hafi síðan, eins og hann hefur lýst, sest á rúmið hjá brotaþola. Þetta bendi ekki til þess að hann hafi komið inn í herbergið með þann ásetning að notfæra sér ölvun eða svefndrunga brotaþola í kynferðislegum tilgangi. Í dómnum er bent á að ein stúlknanna hafi heyrt kynlífsstunur þar sem hún lá í rúmi sínu og taldi þær koma frá konu. Taldi hún að ein vinkvenna sinna væri að stunda sjálfsfróun. Telur dómurinn það renna stoðum undir að brotaþoli hafi tekið fullan þátt í samförunum. Það kunni þó vel að vera vegna þess að hún hafi talið að maður hennar væri við hlið sér í rúminu. „Það leiðir hins vegar til þess að ákærða gat ekki verið ljóst að brotaþoli var andsnúin atlotum hans. Að mati dómsins telst því ósannað, gegn staðfastri neitun ákærða, að hann hafi af ásetningi notfært sér ölvun og svefndrunga brotaþola og gegn vilja hennar haft við hana samræði og ber því að sýkna hann af kröfum ákæruvaldsins í máli þessu. Framburður vitna og skýrslur sérfræðinga fá þessari niðurstöðu ekki breytt.“
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira